Körfubolti

Byrjuðu á ní­tján stiga sigri á Portúgölum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenska U-18 liðið sem keppir á EM í körfubolta.
Íslenska U-18 liðið sem keppir á EM í körfubolta. kkí

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum átján ára og yngri fór vel af stað í B-deild Evrópumótsins í Króatíu. Í dag sigraði Ísland Portúgal með nítján stiga mun, 68-87.

Íslendingar voru fjórum stigum yfir í hálfleik, 39-43, en gáfu enn frekar í eftir hlé.

Íslenska vörnin var gríðarlega sterk í seinni hálfleik þar sem Portúgal skoraði aðeins 29 stig. Á meðan skoraði Ísland 44 stig.

Benóní Stefan Andrason skoraði 21 stig fyrir Ísland, tók sex fráköst og stal boltanum fimm sinnum.

Jakob Kári Leifsson skoraði átján stig, tók fimm fráköst og gaf sex stoðsendingar og Sturla Böðvarsson skilaði sextán stigum.

Næsti leikur Íslands er gegn Tékklandi á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×