Matthías Guðmundsson: „Þá skaðar það sálina líka“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 29. júlí 2026 22:04 Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, átti ekki góðan seinni hálfleik gegn Fram í Bestu deild kvenna. Vísir/Diego „Mér líður skelfilega, eins og pottþétt öllum inn í klefa,“ sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, beint eftir slæmt tap gegn Fram í kvöld. Lokatölur 4-1 fyrir heimakonum í Fram. Valur er enn á botninum, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Staðan var 1-0 í hálfleik fyrir Fram en Valur var ekki lengi að jafna leikinn í síðari hálfleik. Í kjölfar jöfnunarmarksins skoruðu Framarar þrjú mörk á tíu mínútna kafla, sem fór með leikinn fyrir lánlausar Valskonur. „Mér fannst fyrri hálfleikurinn ganga vel upp, þó að niðurstaðan úr honum var ekki góð, 1-0 undir. Ég var einhvern veginn sannfærður að þær myndu jafna þennan leik. Eftir jöfnunarmarkið þá kemur einhver tíu mínútna kafli sem er rosalega erfitt að spila í hausnum á sér akkúrat núna. Það fór með okkur alla leið, sem sagt töpuðum leiknum.“ Inntur eftir frekari útskýringum á því hvað gekk á þegar Fram valtaði yfir Valsliðið á tíu mínútna kafla, þá hafði Matthías þetta að segja. „Það eru pottþétt útskýringar, þess vegna horfir maður alltaf á leikinn aftur. Í fljótu bragði er erfitt að benda á hvað er. Þetta er svona týpískt mark, markið sem kemur þeim á bragðið. Skot í einhvern leikmann hjá mér sem er að henda sér fyrir og hann dettur fyrir sóknarmann þeirra sem að klárar það. Þetta slær okkur greinilega út af laginu. Þessi tíu mínútna kafli fer með leikinn.“ Valur er enn á botninum eftir þessi úrslit og útlitið dökkt. Hvað þarf Valur að gera til að spyrna sér frá botninum? „Við þurfum núna, sem var planið fyrir þennan leik, við þurfum alltaf að standa saman. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Trúa á það sem við erum að gera og reyna að auka sjálfstraustið í liðinu. Fá meira sjálfstraust og trú á það sem við erum að gera.“ „Við þurfum svo að skoða varnarleikinn eitthvað aðeins. Það er ekki það langt síðan að við vorum að fá fá mörk á okkur og það snýst aðeins við. Seinustu tveir leikir, það er augljóslega allt of mikið af mörkum sem að við fáum á okkur og við megum enn þá nýta sóknarstöðurnar okkar betur. Við fengum sóknarstöður sem voru mjög góðar í fyrri hálfleik og ég hefði klárlega viljað fara inn í hálfleikinn með mark.“ Að lokum var Matthías spurður út í hvort úrslit sem þessi og staða Vals í töflunni kalli á viðbrögð á leikmannamarkaðnum þar sem að félagsskiptaglugginn er opinn. „Það er ekki komið þangað núna að við bætum í. Hópurinn er flottur. Við erum komin með tvo sóknarmenn inn í þessum glugga sem eru öflugir leikmenn og þurfa kannski smá tíma til þess að koma sér inn í þetta, en þær eru að bíta klárlega strax frá sér.“ „Við þurfum að smella meira. Þetta er svona þegar það gengur einfaldlega illa, þá skaðar það sálina líka. Hún þarf að komast í lag svo að við getum snúið peningnum við,“ sagði Matthías að lokum.
Besta deild kvenna Íslenski boltinn Valur Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira