FIFA heldur settri stefnu Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. júlí 2026 07:25 Gianni Infantino, forseti FIFA. Carl Recine/Getty Images Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA sendi frá sér yfirlýsingu í morgunsárið þar sem því er lofað að mjög svo umdeildum áætlunum um utanaðkomandi fjárfestingar verði fylgt eftir. Ekki sé verið að selja fótboltann frá sambandinu. Fjölmiðlar hafi truflað kynningarferlið.
FIFA hefur staðið í eldlínunni eftir að blaðamenn The Times greindu frá áætlunum um utanaðkomandi fjárfestingar á þriðjudag. Eftir neyðarfund í gær samþykktu allar aðildaþjóðir evrópska knattspyrnusambandsins UEFA að sniðganga keppnir á vegum FIFA, þar með talin heimsmeistaramótin, ef plön forsetans Gianni Infantino fá fram að ganga. CONCACAF, knattspyrnusamband Norður- og Mið-Ameríku ásamt Karíbaeyríkjum, kvað ekki í jafn fastan hvað sniðgöngu varðar en mótmælti áætlununum. Knattspyrnusamband Asíu, AFC, sagðist áður ósátt við hvernig tillagan var kynnt. Uppfært klukkan 08.56: Asía tekur undir mótmæli við áætlunum FIFA. Ljóst er að tillagan verður annað hvort felld eða samþykkt með að minnsta kosti 106 af 211 atkvæðum aðildarsambanda FIFA, hreinum meirihluta. UEFA og CONCACAF telja samtals 96 atkvæði. AFC telur 47 aðildarþjóðir. Í yfirlýsingu segir FIFA að kynningarferli tillögunnar hafi verið „truflað af röngum fréttaflutningi.“ „Við virðum þá endurgjöf og þær áhyggjur sem komið hafa fram opinberlega og ítrekum skuldbindingu okkar til opins og lýðræðislegs samráðs… …Enginn er að selja fótboltann. Það er eitthvað sem FIFA myndi aldrei íhuga. Allir hafa rétt til að lýsa yfir andstöðu sinni og leita frekari skýringa, en enginn einn aðili getur gert tilkall til að tala fyrir hönd allra 211 aðildarsambanda um allan heim. Hvert aðildarsamband ætti að fá að fara yfir tillöguna og hafa sitt að segja um mótun eigin framtíðar. Þetta eru lýðræðislegar grundvallarreglur FIFA... ...Við munum halda samráðsferlinu áfram til að tryggja að hvert aðildarsamband hafi tækifæri til að greiða atkvæði sitt á grundvelli staðreynda. ,” segir einnig í tilkynningu FIFA sem má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. https://t.co/6ChPeKUlQR— FIFA Media (@fifamedia) July 31, 2026
FIFA UEFA KSÍ Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Brentford - Tottenham | Lundúnaslagur í fyrstu umferð HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Sjá meira