Asíuþjóðirnar taka undir áhyggjur af áætlunum FIFA Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. júlí 2026 08:46 Sheikh Salman Bin Ebrahim Al Khalifa, forseti knattspyrnusambands Asíu. EPA/PATRICK B. KRAEMER Knattspyrnusamband Asíu, AFC, tekur undir með samböndum Evrópu og Ameríku, UEFA og CONCACAF, og mótmælir fyrirhuguðum áætlunum um utanaðkomandi fjárfestingar hjá alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA.
AFC sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu þar sem sambandið segist standa með UEFA og CONCACAF. AFC geti með engu móti stutt hugmyndina. „Í ljósi þeirrar skýru afstöðu sem UEFA og CONCACAF hafa lýst yfir, auk þeirrar fordæmalausu sundrungar sem hefur komið upp í fótboltaheiminum, telur AFC að fyrirhuguð áætlun geti ekki náð þeirri víðtæku samstöðu og einingu sem þarf til að halda áfram,“ segir í yfirlýsingu AFC. Líkt og CONCACAF gengur AFC ekki svo langt að hóta sniðgöngu frá keppnum FIFA. Hins vegar hefur UEFA hótað sniðgöngu. AFC segir ferlið sem hefur undið ofan af síðustu daga opinbera veikleika innan FIFA. Áður hafði AFC gefið frá sér yfirlýsingu þar sem sambandið sagðist „vonsvikið“ að hafa ekki verið haft með í ráðum. Ný yfirlýsing gengur skrefinu lengra. AFC gagnrýnir ferli og ákvarðanatökur FIFA enn harðar, án þess þó að gagnrýna beinlínis áætlanirnar sjálfar. Ljóst er að tillaga FIFA verður annað hvort felld eða samþykkt með hreinum meirihluta, eða að minnsta kosti 106 af 211 atkvæðum aðildarsambanda FIFA. UEFA, CONCACAF og AFC telja samtals 143 atkvæði. Yfirlýsingu AFC má finna í heild sinni hér fyrir neðan. AFC stands in solidarity with UEFA and CONCACAF following recent developments surrounding the proposed establishment of FIFA Forward Enterprise (FFE).https://t.co/k7MjAvWOhX— AFC (@theafcdotcom) July 31, 2026
FIFA UEFA KSÍ Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Breiðablik - Afturelding | Hvort liðið endar sem bikarmeistari? Íslenski boltinn Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Breiðablik - Afturelding | Hvort liðið endar sem bikarmeistari? Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Sjá meira