Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Agnar Már Másson skrifar 1. ágúst 2026 15:41 Í fyrra var tilkynnt um eitt kynferðisbrot á þjóðhátíð, rétt eins og árin tvö þar á undan. Vísir/Sigurjón Hvorki barst tilkynning um kynferðisbrot né líkamsárás í Vestmannaeyjum í nótt, að sögn lögreglu í Eyjum. Yfirlögregluþjónn segir að fyrsti dagur Þjóðhátíðar hafi gengið afar vel. „
Nóttin fór vel fram. Það var blíðskaparveður og talsverður fjöldi. Við erum bara sátt við útkomuna síðasta sólarhring,“ segir Stefán Jónsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum. Greint var frá því í morgun að þyrla Landhelgisgæslunnar hefði verið ræst út á ellefta tímanum í gærkvöldi til þess að sækja mann sem slasaðist í fjalllendi í Eyjum. Stefán greinir frá því í samtali við fréttastofu að maðurinn hafi verið uppi á Há, sem er fjall austan við Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. Hann kveðst ekki vita hvort um Þjóðhátíðargest sé að ræða. Tildrög slyssins séu óljós. Þá hafi engar tilkynningar borist um kynferðisbrot né líkamsárásir. „Við höfum ekki fengið neinar tilkynningar um slíkt,“ segir Stefán og svarar aðspurður að það séu frábærar fréttir. Alla jafna hafi fyrsti dagur Þjóðhátíðar gengið afar vel, en færri gestir séu í dalnum í ár miðað við fyrri ár. „Þetta er eitthvað svona ívið færra, sýnist okkur, miðað við undanfarin ár. En það er hægt að hrósa gestum hingað til. Þetta er bara mjög gott.“ Í fyrra var tilkynnt um eitt kynferðisbrot á Þjóðhátíð í Eyjum en ekki var greint frá því fyrr en tæpum mánuði síðar, þar sem lögreglan í Eyjum hefur alla jafna ekki viljað gefa upp fjölda tilkynninga um kynferðisbrot fyrr en búið væri að tryggja rannsóknarhagsmuni.
Þjóðhátíð í Eyjum Vestmannaeyjar Lögreglumál Kynferðisofbeldi Verslunarmannahelgin Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira