Spá hóflegum hagvexti næstu árin Árni Sæberg skrifar 6. ágúst 2026 05:01 Björn Brynjúlfur Björnsson er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Vísir/Vilhelm Samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs á hagkerfinu má búast við hóflegum hagvexti á næstu misserum þrátt fyrir þráláta verðbólgu og vaxandi atvinnuleysi. Fjölbreytni útflutnings haldi áfram að aukast og ferðaþjónustan standi sterkum fótum þrátt fyrir ýmsar áskoranir.
Viðskiptaráð hefur gefið út skýrsluna The Icelandic Economy. Skýrslan er gefin út bæði á ensku og í íslenskri þýðingu en í henni er farið yfir íslenskt hagkerfi og stöðu efnahagsmála hérlendis. Meðal annars er þar fjallað um þróun helstu skammtímahagvísa, stöðu og horfur í efnahagslífinu, utanríkisviðskipti, verðbólguþróun og gengi gjaldmiðla, auk annarra atriði sem varða efnahagsmál. Hóflegur vöxtur Í samantekt skýrslunnar á vef Viðskiptaráðs segir að eftir sögulegt hagvaxtarskeið í kjölfar viðsnúnings eftir COVID-faraldurinn, hafi hagkerfið tekið að kólna. Hagvöxtur hafi mælst 1,3 prósent árið 2025, þá geri spár ráð fyrir 1,6 prósenta hagvexti árið 2026 og að hagvöxtur verði að jafnaði 2 prósent árin tvö þar á eftir. Viðskiptaráð Íslands Aukning í atvinnuleysi sé annað merki um kólnun í hagkerfinu, en samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands hafi árstíðarleiðrétt atvinnuleysi verið 7,6 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Hluta þeirrar aukningar megi rekja til umbóta í mælingum á atvinnuleysi meðal innflytjenda. Engu að síður sé skráð atvinnuleysi á uppleið og merki um að fyrirtæki haldi aftur af sér þegar kemur að ráðningum. Ýmsar áskoranir í ferðaþjónustu Þá segir að ferðaþjónustan hafi náð sér á strik eftir heimsfaraldurinn og hlutdeild hennar í landsframleiðslu hafi numið 8,8 prósentum árið 2025, og hafi ekki mælst hærri, þrátt fyrir ýmsar áskoranir. Megi þar einkum nefna fall flugfélagsins Play, sem hafi valdið framboðsskelli á flugferðum til og frá landinu undir lok árs 2025. Þá hafi átökin í Mið-Austurlöndum valdið verðhækkunum á eldsneyti með tilheyrandi áhrifum á rekstrarkostnað flugfélaga. Sólmyrkvinn í ágúst veiti greininni byr í seglinn með aukinni eftirspurn til landsins. Ísland sé dýr áfangastaður í samanburði við önnur lönd, sem rýri samkeppnishæfni greinarinnar. Viðskiptaráð Íslands Aðrar útflutningsgreinar utan grunnatvinnuvega þjóðarinnar, það er sjávarútvegs, ferðaþjónustu og álframleiðslu, hafi staðið undir 24 prósentum af útflutningstekjum þjóðarbúsins en aðeins ferðaþjónusta vegi þyngra. Til að tryggja efnahagslegan stöðugleika þarf að fjölga útflutningsstoðum og tryggja hagfelld rekstrarskilyrði greina sem eru ekki háðar náttúruauðlindum. Vel menntað vinnuafl og hvetjandi umhverfi til nýsköpunar styðja við það markmið. Efst á fjórum listum Ísland standi framarlega á mörgum samfélagslegum mælikvörðum. Landið standi fremst þegar kemur að jafnrétti kynja, friði, lífskjörum og sé annað hamingjusamasta land í heimi, á eftir Finnlandi. Viðskiptaráð Íslands Ísland sé í 22. sæti af 70 löndum á samkeppnishæfnislista IMD og það sé sjö sætum neðar en í fyrra. Þrátt fyrir lækkunina í ár hafi samkeppnishæfni aukist verulega frá árinu 2010, þegar Ísland sat í 30 sæti.
Efnahagsmál Mest lesið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts Viðskipti erlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Viðskipti innlent Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Viðskipti innlent Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Fleiri fréttir Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Sjá meira