Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. ágúst 2026 11:11 Íslendingurinn hefur verið búsettur erlendis í meira en sextán ár og þurfti því að sækja um að vera settur á kjörskrá. Vísir/Lýður Valberg Íslenskum ríkisborgara í Danmörku var synjað um að vera tekinn á kjörskrá fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst. Hann taldi að brotið hefði verið á stjórnarskrárvörðum kosningarétti sínum.
Íslendingurinn er búsettur í Danmörku og sótti um skráningu á kjörskrá þann 28. júlí 2026. Þjóðskrá tók umsóknina fyrir og taldist hún fullnægjandi. Íslendingnum var tilkynnt að hann hefði verið tekinn á kjörskrá á tímabilinu frá 1. desember 2026 til 1. desember 2030. Eftir þetta hafði Íslendingurinn samband við Þjóðskrá og krafðist þess að vera tekinn á kjörskrá fyrir 29. ágúst svo hann gæti greitt atkvæði um mögulegar aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þjóðskrá synjaði þeirri beiðni með vísan til þess að umsókn um skráningu tæki gildi 1. desember 2026 líkt og kosningalög kveða á um. Íslendingurinn ákvað að kæra synjunina til úrskurðarnefndar kosningamála þar sem að ákvörðun Þjóðskrár „leiði til ólögmætrar og óhóflegrar skerðingar á stjórnarskrárvörðum kosningarétti hans“. Hann segir það ekki sanngjarnt eða í samræmi við meðalhófsreglu að svipta hann kosningarétti einungis vegna þess að umsóknin öðlist ekki gildi fyrr en í desember. Úrskurðarnefndin tók málið fyrir og fór yfir kosningalögin. Þar segir að allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa átján ára aldri og hafa átt lögheimili hér á landi séu með kosningarétt í sextán ár frá því að þeir flytja lögheimili sitt úr landi. „Eftir þann tíma skal hann sækja um til Þjóðskrár Íslands um að vera tekinn á kjörskrá. Ákvörðun um að umsækjandi skuli tekinn á kjörskrá gildir í fjögur ár í senn frá 1. desember næstum eftir að umsókn var lögð fram,“ segir í úrskurðinum. Nefndin ætlar að greinin sem kveður á um að umsóknin taki gildi 1. desember sé til þess að fyrirsjáanleiki sé í framkvæmd og utanumhaldi kjörskrár. „Ákvæðið felur í sér tilteknar formkröfur sem ríkisborgarar, sem búsettir hafa verið lengi erlendis, þurfa að fylgja til að viðhalda kosningarétti sínum hér á landi eða öðlast slíkan rétt á ný. Íslendingar sem eru búsettir erlendis geta þannig viðhaldið kosningarrétti sínum eins lengi og þeir vilja. Því verður ekki talið að ákvörðun Þjóðskrár Íslands sé ólögmæt eða gangi gegn stjórnarskrárvörðum kosningarétti kæranda,“ segir í úrskurði nefndarinnar. Það var því niðurstaða hennar að synja Íslendingnum um að vera tekinn á kjörskrá fyrir atkvæðagreiðsluna 29. ágúst.
Úrskurðar- og kærunefndir Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira