Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 09:43 Todd Blanche hefur verið starfandi dómsmálaráðherra eftir að Pam Bondi var sagt upp. EPA Todd Blanche er formlega orðinn dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti tilnefningu hans með einu atkvæði.
50 þingmenn repúblikana greiddu atkvæði með tilnefningunni en 49 þingmenn demókratanna auk repúblikananna Susan Collins og Lisu Murkowski greiddu atkvæði gegn honum. „Herra Blanche er ekki fullkominn og hann mun segja það sjálfur en valið stendur ekki á milli fullkomnunar og herra Blanche,“ sagði Bill Cassidy, öldungaþingmaður repúblikana sem átti oddaatkvæðið. Blanche var einkalögmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta um tíma og var svo gerður að næstráðanda í dómsmálaráðuneytinu þegar Pam Bondi gegndi embætti ráðherra. Bondi var síðan rekin af Trump sem sagði ástæðuna vera að hún gengi ekki nægilega hart fram gegn pólitískum andstæðingum sínum. Frá uppsögninni hefur Blanche verið starfandi ráðherra. Blanche hefur í opinberum störfum sínum ítrekað lýst yfir skoðunum á því að framkvæmdavaldið, forsetaembættið, hafi umfangsmeiri valdheimildir en áður hefur verið talið. Þá hefur hann verið harðlega gagnrýndur vegna þess hvernig hann hélt á spöðunum þegar kom að birtingu Epstein-skjalanna svokölluðu. Hann sá sömuleiðis til þess að bandaríska skattinum var meinað að rannsaka Trump og fjölskyldu hans vegna mögulegra skattsvika.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira