Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 17:05 Allir ICE-fulltrúar munu fá búkmyndavél. EPA Innflytjenda- og tollaeftirlit Bandaríkjanna (ICE) ætlar að gera öllum fulltrúum sínum skylt að bera búkmyndavél. Hins vegar mun myndefni vélanna ekki vera birt opinberlega nema í það sé í þágu þeirra „brýnustu hagsmuna“.
Allir starfsmenn ICE munu vera komnir með búkmyndavélar fyrir lok september eftir margra ára tafir. Innleiðingin kemur í kjölfar banvænna árása fulltrúanna við störf þeirra að framfylgja innflytjendastefnu Donalds Trump. Töluverður þrýstingur hefur verið á stofnunina að taka upp notkun búkmyndavéla vegna þessa. Í stefnu ICE segir að myndskeið af skotárásum eða öðrum atvikum þar sem starfsmenn valda dauða eða meiðslum verði tafarlaust birt en einungis eftir að komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að birtingin sé „í brýnustu hagsmunum stofnunarinnar“. Skipa á sérstaka nefnd til að fara yfir myndefnið og mæla með því hvort það skuli birt tafarlaust. Ef svarið er já verður upptakan birt innan 72 klukkustunda. Forstjórinn hefur hins vegar áhrif og ef hann telur að sérstakar aðstæður réttlæti að halda myndbandinu leyndu getur hann frestað eða komið í veg fyrir birtinguna. AP-fréttaveitan greinir frá og hefur eftir sérfræðingum í stefnumótun að með þessu geti forstjóri stofnunarinnar hafi svigrúm til að birta upptökur sem varpa jákvæðu ljósi á ímynd þeirra og haldið öðru leyndu. „Að sumu leyti er ICE að segja það sem allir hugsa en þora ekki að segja upphátt. Búkmyndavélar eru notaðar sem nútímaleg ímyndarverkfæri til að kynna lögregluna fyrir almenningi á sem hagstæðastan hátt,“ er haft eftir Christopher Schneider, prófessor sem skrifaði bók um búkmyndavélar. Keyptu fleiri daginn eftir andlátið Í stefnu ICE er einnig tilgreint að starfsmennirnir þurfi að kveikja á myndavélunum við venjulegar aðgerðir, þar á meðal við handtökur, framkvæmd húsleitar og þegar brugðist er við neyðartilvikum. Búkmyndavélarnar kostuðu 30,9 milljónir dollara og hófust greiðslurnar degi eftir að 25 ára gamall ökumaður var skotinn til bana í Maine af hendi ICE-starfsmanns sem hafði sögu um ofbeldishegðun. Nokkrum dögum áður var maður í Houston skotinn til bana af öðrum ICE-starfsmanni. Það vakti upp reiði meðal þingmanna sem höfðu úthlutað stofnuninni tuttugu milljón dollara í kaup á búkmyndavélum sem ekki höfðu nýst í það. Stofnunin hóf fyrst að prófa búkmyndavélar árið 2021 og var 1400 tækjum komið í notkun þremur árum síðar. Donald Trump Bandaríkjaforseti afturkallaði hins vegar tilskipun Joe Biden, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem skipaði öllum alríkislöggæslustofnunum að nota búkmyndavélar.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Sjá meira