Sögulegur samningur fyrir kvennaknattspyrnuna í Noregi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2026 19:31 Maren Mjelde fagnaði titli með Maríu Þórisdóttur þegar þær voru saman hjá Chelsea en núna er Mjelda andlit norsku B-deildarinnar. Getty/Kieran Galvin Norðmenn eru að taka risastórt skref í kvennafótboltanum sínum því þeir hafa fengið aðalstyrktaraðila fyrir 1. deild kvenna sem er B-deildin þar í landi.
Verslunarkeðjan Coop kemur inn sem aðalstyrktaraðili 1. deildar kvenna en þetta kemur fram í tilkynningu frá Toppfotball kvinner, hagsmunasamtökum félaganna. „Þetta er sögulegur samningur fyrir norska kvennaknattspyrnu. Í fyrsta sinn höfum við aðalstyrktaraðila fyrir 1. deild kvenna, sem gefur deildinni skýrari stöðu, meiri sýnileika og betri forsendur fyrir frekari þróun,“ sagði Marianne Solheim, framkvæmdastjóri Toppfotball Kvinner, í fréttatilkynningunni. „Þegar deildin verður fagmannlegri og fær meiri athygli skapar það enn betri forsendur fyrir leikmenn sem vilja þróa sinn leik. Það er jákvætt bæði fyrir okkur sem spilum í dag og fyrir stelpurnar sem dreymir um að komast á toppinn,“ segir Maren Mjelde hjá Arna-Bjørnar, sem er stærsta stjarna deildarinnar. Maren Mjelde er fyrrum fyrirliði norska landsliðsins og vann titla með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Samningurinn gildir frá 2026 til 2029. Félög eins og Åsane, Viking, Start, Odd, Kolbotn, Tromsø og Bryne spila í deildinni. „Coop-deildin nær frá Tromsø í norðri til Start og Kristiansand í suðri og gefur okkur tækifæri til að skapa meiri virkni, fleiri fyrirmyndir og fleiri tækifæri fyrir stelpur sem vilja leggja áherslu á fótbolta um allt land,“ sagði Philipp Engedal, forstjóri Coop. View this post on Instagram A post shared by coopligaen (@coopligaen)
Norski boltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Tómas Bent og félagar í Hearts með sigurmark á ögurstundu Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Glódís leiddi Bayern til stórsigurs Sjá meira