Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Andri Broddason skrifar 11. ágúst 2026 12:01 Ifeanyi Ndukwe þarf að safna sér punktum til að fá leyfi til að starfa innan Bretlands. Chris Brunskill/Getty Images Ungur Austurríkismaður hefur spilað í vörn Liverpool í vináttuleikjum og staðið sig vel. Þrátt fyrir það má hann ekki spila með liðinu á komandi tímabili.
Liverpool er í varnarmannakrísu þar sem flestir varnarmenn liðsins eru meiddir. Joe Gomez meiddist í æfingaleik og Jeremy Jaquet, varnarmaðurinn sem félagið keypti í sumar, er í vandræðum með hnéð sitt. Einnig er Giovanni Leoni meiddur á hné en búist er við að hann verði töluvert lengur frá heldur en Jacquet. Það hefur því verið lítið úrval fyrir Liverpool af varnarmönnum til að spila við hlið Virgil Van Dijk. Ungur Austurríkismaður að nafni Ifeanyi Ndukwe hefur því fengið tækifæri og var hann í byrjunarliðinu í æfingaleik gegn AS Monaco. Ndukwe stóð sig vel í leiknum en hann mun ekki fá að spila með Liverpool í keppnisleik þar sem hann hefur ekki starfsleyfi innan Bretlands. Hann getur því aðeins spilað vináttuleiki. Eftir að Bretland fór úr Evrópusambandinu varð flóknara fyrir leikmenn að fá leyfi til að starfa í Bretlandi og er það að flækjast fyrir Ndukwe. Búist er við að Ndukwe fari á lán til annars félags í Evrópu þar sem hann getur fengið reynslu. Hann þarf samt að huga að því að fá starfsleyfi í Bretlandi en ef hann keppir í nógu góðri deild þá gæti hann fengið starfsleyfi í Bretlandi í janúar. Ifeanyi Ndukwe kom til Liverpool í sumar eftir að hafa heillað verulega á heimsmeistaramóti U17 sem haldið var í nóvember. Liverpool ákvað að kaupa hann frá Austria Wien í janúar en samningurinn var ekki staðfestur fyrr en í sumar þegar Ndukwe var orðinn átján ára.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Hadjar frá í aðra keppni Formúla 1 Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira