Mæta kýpversku meisturunum í fyrstu Evrópuleikjunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2026 11:53 FH mætir sextánföldum Kýpurmeisturum Apollon Ladies í 1. umferð forkeppni Evrópubikarsins. Um er að ræða fyrstu Evrópuleiki kvennaliðs FH. vísir/guðmundur FH mætir Apollon Ladies frá Kýpur í 1. umferð forkeppni Evrópubikars kvenna. Um er að ræða fyrstu Evrópuleiki kvennaliðs FH. Breiðablik mætir Csíkszereda frá Rúmeníu.
Dregið var í 1. umferð Evrópubikars kvenna í dag. Þetta er annað ár keppninnar en sænska liðið Häcken vann hana á síðasta tímabili. Breiðablik og FH voru bæði í pottinum í dag. Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta Csíkszereda sem endaði í 2. sæti rúmensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Fyrri leikurinn fer fram á Eikarvellinum í Kópavogi 26. ágúst en sá seinni í Rúmeníu 2. september. Kvennalið FH mætir Apollon Ladies í sínum fyrstu Evrópuleikjum. FH-ingar enduðu í 2. sæti í deild og bikar á síðasta tímabili en eru núna á toppi Bestu deildarinnar. Apollon Ladies varð kýpverskur meistari á síðasta tímabili. FH byrjar á útivelli 26. ágúst en Apollon Ladies kemur í heimsókn í Kaplakrika 2. september. Arna Eiríksdóttir, fyrrverandi fyrirliði FH, Fanney Inga Birkisdóttir, sem vann Evrópubikarinn með Häcken á síðasta tímabili, og stöllur þeirra í Vålerenga mæta Radomlje frá Slóveníu í 1. umferðinni. Brøndby, sem Hafrún Rakel Halldórsdóttir spilar með, mætir serbneska liðinu Spartak Subotica og Anderlecht, lið þeirra Andreu Rutar Bjarnadóttur og Vigdísar Lilju Kristjánsdóttur, mætir Feyenoord frá Hollandi. Tólf einvígi eru í 1. umferð Evrópubikarsins en sigurvegarar þeirra komast áfram í 2. umferðina. Þar bætast svo við tuttugu lið úr Meistaradeild Evrópu. Dregið verður í 2. umferð Evrópubikarsins 4. september næstkomandi.
Evrópubikar kvenna í fótbolta FH Breiðablik Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Fótbolti Fleiri fréttir Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Sjá meira