Norskir nei-sinnar bæta við sig Agnar Már Másson skrifar 11. ágúst 2026 16:47 Jonas Gahr Störe er forsætisráðherra og formaður Verkamannaflokksins í Noregi. Getty Norðmenn fylgjast grannt með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ný skoðanakönnun sýnir að meirihluti Norðmanna er enn andvígur því að sækja aftur um aðild að sambandinu.
Sjónvarpsstöðin TV-2 lét vinna skoðanakönnun þar sem spurt var hvort Norðmenn ættu að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Þar svöruðu um 65,9 prósent svarenda neitandi, en 34,1 prósent játandi. Nei-sinnar bæta því við sig um prósentustigi frá því í desember, en hafa jafnframt bætt við sig um sex prósentustigum frá því í apríl 2025. HM-áhrifin? Í frétt TV2 er haft eftir Geir Pollestad, þingmanni norska Miðjuflokksins (sem er þar jafnframt lýst sem áhugamanni um knattspyrnu), að heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem haldið var í Norður-Ameríku í sumar kynni að hafa áhrif. Sá árangur sem Noregur náði á mótinu – og ekki síður sú athygli sem róður stuðningsmanna Noregs vakti í heimsmiðlum – kunni að hafa eflt þjóðernisstolt Norðmanna. Gjörbreytt staða Þjóðaratkvæðagreiðslan á Íslandi 29. ágúst hefur jafnframt vakið mikla athygli í norskum fjölmiðlum þar sem uppi hafa vaknað spurningar um framtíð EES-samstarfsins ef Ísland skyldi gerast fullgildur meðlimur að ESB. Utanríkisráðherra Noregs hefur sagt gjörbreytta mynd blasa við ef Íslendingar ákveði að ganga inn í Evrópusambandið. EES-samningurinn myndi þó halda en staða Norðmanna veikjast.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Noregur Utanríkismál Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira