Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson skrifar 12. ágúst 2026 15:02 Það verður sífellt augljósara að framkvæmdir sem Kópavogsbær hefur heimilað á Fannborgar- svæðinu í hjarta Kópavogs eru óþolandi fyrir íbúa. Það sem enn verra er, byggingar sem þar eiga að rísa á næstu 5 til 7 ár um munu skapa mannskemmandi umhverfi til langs tíma. Þetta hefur blasað við frá því að meirihluti bæjarstjórnar samþykkti deiliskipulag fyrir svæðið. Á síðasta kjörtímabili var ítrekað reynt að koma vitinu fyrir meirihlutann og fá hann til, að leiðrétta alvarleg mistök sem gerð voru með sölu á fasteignum bæjarfélagsins á svæðinu árið 2018 og samþykkt á deiliskipulag fyrir svæðið sem fylgdi í kjölfarið 2022 . Ekki var á það hlustað og mér finnst ákvarðanir meirihluta bæjarstjórnar í þessu máli sýna mannfyrirlitningu og skort á virðingu fyrir íbúum. Þessa dagana ríkir „hernaðarástand“ vegna framkvæmda á Fannborgarsvæðinu: Rask og ónæði sem íbúar búa við er langt umfram mörk sem eðlileg geta talist. Rúðubrot og aðrar skemmdir á fasteignum hafa ítrekað komið upp og hávaði er yfirgengilegur. Mörg dæmi eru um að íbúar hafi flúið heimili sín og nokkrar íbúðir eru „múraðar“ inni með háum krossviðsplötum. Framundan er „sprengjutímabilið“ þar sem farið verður allt 10 metra niður klöppina við veggi fjölbýlishúsa. Þar á að byggja bílakjallara á hæðum og byggingar ofanjarðar verða allt að 12 hæðir. Fyrirhuguð þétting á svæðinu er fordæmalaus að mati Skipulagsstofnunar og til samanburðar er græna gímaldið hrein hátíð. Í Fannborg 8 eru 29 íbúðir fyrir eldri borgara og meðalaldur þeirra er um 88 ár. Margir sem búa á svæðinu eru fatlaðir og reglan um rétt þeirra að hafa aðgang að bílastæðin innan 25 metra frá heimili sínu er ekki virt. Heilsa og vellíðan íbúa virðast engu máli skipta. Það er ekki of seint að bregðast við. Mér finnst Kópavogsbúar ekki eiga að una því óréttlæti að um 300 samborgarar, margir aldraðir og fatlaðir, þurfa að axla byrðarnar af óhóflegri þéttingu og dæmalausum áralöngum framkvæmdum til að fullnægja metnaði meirihluta bæjarstjórnar um þétta og háa byggð, sem í stangast á við allar meginkröfur um ljósvist, hljóðvist og verðurskilyrði. Aðstæður á svæðinu nú minna á stríðsástand. Við það búa íbúar 5 daga vikunnar, og raunar líka á laugardögum þótt öðru hafi verið lofað. Ætla bæjaryfirvöld Fannborgarbúum að sætta sig við svona ástand mörg næstu ár? Þau veittu heimildir til þessara framkvæmda, með fullri vitund um áhrif þeirra og afleiðingar án þess að bjóða íbúum nokkrar bætur eða uppkaup íbúða? Væntanlega mun reyna á kröfur gagnvart Kópavogsbæ í bótamálum fyrir dómstólum. Má ekki ennþá vonast til að horfið verði frá núverandi framkvæmdum og leitað að mildari útfærslu uppbyggingar með samtali og samráði við íbúa? Enn er það ekki of seint og gæti orðið kostnaðarminna fyrir bæinn en að halda áfram að óbreyttu. Viljum við, íbúar Kópavogs, að meirihluti bæjarstjórnar leyfi sér að fara svona með fatlaða og aldraða borgara sem eiga sér enga vörn gagnvart hörmungunum sem á dynja? Er ekki tímabært að þeir axli ábyrgð sem komu öllu í óefni fyrir íbúa í og við Fannborg? Fremst í þeim hópi eru bæjarstjóri og forveri hennar í starfi. En þeir eru margir fleiri sem áttu þátt í að koma þessum samborgurum okkar í grafalvarlega og heilsuspillandi stöðu. Í ljósi aðstæðna kalla ég eftir því að íbúar verði beðnir afsökunar og staða mála útskýrð fyrir þeim, sé það yfir höfuð mögulegt. Best væri þó að bæjarstjóri og meirihluti bæjarstjórnar beitti sér fyrir því að leiðrétta þau mistök sem gerða hafa verið með samþykkt á deiliskipulagi og byggingaheimildum í miðbæ Kópavogs. Höfundur situr í stjórn félagsins Vinir Kópavogs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Tryggvi Felixson Mest lesið Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Skoðun Stöndum saman um að treysta EES í sessi Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Síbylja í sorginni Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Hækkun hjá Heilsu hf. Nota bene! Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar
Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar
Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun