Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Magnús Jochum Pálsson skrifar 13. ágúst 2026 16:20 Nicole Kidman giftist Tom Cruise 1990 og skildi við hann 2001 og giftist svo Keith Urban árið 2006 og skildi við hann árið 2026. Getty Leikkonan Nicole Kidman segir síðasta ár lífs síns hafa verið erfitt en hún skildi við kántrístjörnuna Keith Urban í september síðastliðnum. Það hafi engu breytt að hafa skilið einu sinni áður og upplifunin væri alveg jafn ný fyrir henni. Hún giftist Tom Cruise þegar hún var 23 ára gömul og man varla hvernig lífið var fyrir frægðina.
Leiðir skildu hjá Nicole Kidman og seinni eiginmanni hennar, kántrísöngvaranum Keith Urban, í september 2025. Skilnaður þeirra gekk síðan formlega í gegn í janúar síðastliðnum eftir tuttuga ára hjónaband. Skilnaðurinn var útkljáður í góðu, þau þurftu ekki að fara fyrir dómara og deila nú forsjá yfir dætrum sínum tveimur. Kidman var spurð út í skilnaðinn í viðtali við bresku útgáfuna af Vogue, vildi ekki fara nákvæmlega út í hann en sagðist enn vera að vinna úr honum. Hún sagðist nálgast allt í sínu lífi með tilfinningarnar í forgrunni, hvort sem það tengdist einkalífinu eða leiklistinni. „Það er bara hver ég er. Ég ofhugsa ekki hlutina og er örugglega ekkert mjög rökvís. Ég er miklu frekar tilfinningamiðuð og ég leyfi hjartanu að ráða för. Ég hugsa: „Ókei, hvernig líður mér hér? Ég prófa þetta.“ Það ruglar fólk í ríminu því það heldur að ég sé svo útpæld en ég er það ekki,“ sagði hún í viðtalinu. Hún geti alveg nálgast hlutina vitsmunalega. „En ég vil ekki láta höfuðið stýra för. Ég hef alltaf viljað lifa úthugsuðu lífi og hvað felst í því? Prófa hluti, gera mistök, klúðra málunum, rísa á fætur á ný, halda áfram, fagna ástinni, halda mér opinni, halda hjartanu opnu og öllum mögulegum möguleikum,“ sagði hún jafnframt. Síðasta ár hefði verið erfitt og hún hafi um tíma verið bæði berskjölduð og óttaslegin. Hún hefði ekki búist við því að líf sitt myndi breytast á þennan hátt en það væri ekkert við því að gera. „Þú gerir öll þessi plön og ert með alls konar hugmyndir um það hvernig það verður og svo... verður það ekki þannig. Þú þarft að aðlagast. Framtíðin er mér fullkomlega óráðin núna,“ bætti hún við. Fyrri skilnaðurinn Kidman var spurð hvort hún græddi eitthvað á því að hafa þegar gengið í gegnum einn mjög opinberan skilnað áður. Kidman og leikarinn Tom Cruise skildu árið 2001 eftir rúmlega tíu ára hjónaband. „Þetta er allt nýtt fyrir mér,“ sagði hún þá. Umfram allt væri hún þakklát fyrir fjölskyldu sína og sagði hana vera hennar æðsta tilgang. „Ekkert annað skiptir máli. Þessir krakkar eru það sem maður leggur alla áherslu á,“ sagði hún. Mestu máli skipti að styðja við þau og hjálpa þeim í gegnum erfiðleikana. Hún ætti auðvelt með að halda áfram með lífið því henni liði svo vel í eigin skinni. „Er það skrítið? Það er skrítið,“ sagði hún og bætti við: „En þú verður að muna, vegna þess hverjum ég giftist svona ung, að mér var þrýst út í þetta þegar ég var 22 ára.“ Hún væri orðin vön myndavélunum, áreitinu og umfjölluninni. Hún myndi varla eftir því hvernig líf sitt væri fyrir þann tíma. „Já, ég giftist svo ung,“ ítrekaði hún um hjónaband sitt við Tom Cruise, sem hún kynntist við tökur á kappakstursmyndinni Days of Thunder árið 1990. „Skyndilega var ég 22-23 ára og var gift þessum kvikmyndastjörnueiginmanni. En það virkaði allt svo náttúrulegt. Við urðum ástfangin upp fyrir haus, það var svo einfalt. Ég man að fólk sagði við mig: „Þetta mun virkilega hafa áhrif á feril þinn.“ Ég sagði bara: „Mér er alveg sama, ég er ástfangin. Ég vil vera gift.“ Síðan var ég eiginkonan hans og þau sögðu: „Sko, við sögðum þér það.“ Þá sagði ég: „Hvað með það? Átti ég ekki að giftast manninum sem ég elska? Auðvitað kasta ég ferli mínum á glæ. Mér er alveg sama.“,“ sagði hún í viðtalinu. Kidman og Cruise léku aftur á móti hvor öðru í Far and Away (1992) og voru hjón í Kubrick-myndinni Eyes Wide Shut (1999) en skömmu eftir það slitnaði upp úr hjónabandinu.
Ástin og lífið Hollywood Bíó og sjónvarp Bandaríkin Ástralía Skilnaður Nicole Kidman og Keith Urban Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira