Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Freyja Þórisdóttir skrifar 16. ágúst 2026 17:43 Kristrún Frostadóttir flutti ræðu á Hólahátíð í dag, þann 16. ágúst. Þar snerti hún á ýmsu og meðal annars á þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst næstkomandi. Aðsend Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur að deilur sem upp komi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu sem þjóðin standi frammi fyrir þann 29. ágúst séu ekki af því tagi að landsmenn láti tilfinningarnar bera sig ofurliði. Þvert á móti sé tilfinningahiti fólks almennt minni en gengur og gerist í kosningum.
Kristrún tilkynnti á dögunum að hún ætlaði að fara hringinn í kringum landið og bjóða fólki að hitta sig á svokölluðum hlustunarfundum. Það sé í þeim tilgangi að hlusta á væntingar, þrár og áhyggjur fólks í sambandi við atkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið sem fram fer í lok ágúst. Útlitið ekki eins svart og sumir vilja láta vera Nú hefur henni orðið ljóst að þrátt fyrir að atkvæðagreiðslan sé stórt mál í hugum fólks sem „þjóðin tekur alvarlega og nálgast af ábyrgð — en þó ekki deilumál af því tagi að landsmenn láti tilfinningahitann bera sig ofurliði.“ Það virðist ekki sem menn eða fjölskyldur, heilu samfélögin eða þjóðin séu öll klofin í herðar niður af heift og æsingi, „eins og ýmsir foringjar og álitsgjafar vilja láta vera“. Þá ítrekar hún að einhverjir forystumenn hafi látið stór orð falla, líklega í hita leiksins, með það fyrir augum að magna upp og ala á klofningi sem þeir telji að geti orðið sér og sínum málstað til framdráttar. Undanfarin misseri hafa birst fréttir um að niðurstöður kannana sýni að það sé lítill sem enginn marktækur munur á þeim sem hyggjast kjósa já í ágúst og þeim sem ætla að haka við nei. Að mati stjórnmálafræðings sem rætt var við á dögunum bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað. Tækifæri í því að ganga til samninga Í ræðunni hamrar Kristrún á því að fólkið í landinu viti sínu viti og sé fullfært um að ræða málin af yfirvegun og taka eigin ákvörðun „án þess að láta villa um fyrir sér varðandi það um hvað er kosið, og án þess að láta skipa sér á bás í þessu máli af flokkspólitískum foringjum“. Hún heitir því að treysta, virða og vinna með niðurstöðu þjóðarinnar í málinu en í hennar huga sé ljóst að það geti falist tækifæri í því á þessum tímapunkti að ganga til samninga um aðild að Evrópusambandinu. „En ef fólkinu í landinu hugnast það ekki og vill ekki fá slíkan samning á borðið þá er betur heima setið en af stað farið,“ sagði hún í ræðunni. Kristrún hefur undanfarið sætt gagnrýni fyrir að vera ekki nógu skýr í svörum og jafnvel ósamkvæm sjálfri sér, meðal annars frá Guðrúnu Hafsteindóttur formanni Sjálfstæðisflokksins. Í myndbroti af Kristrúnu Frostadóttur frá árinu 2024, í aðdraganda síðustu þingkosninga, sem hefur verið mikið í dreifingu, sagði hún að afgerandi stuðningur þyrfti að vera við Evrópuvegferð. Nú er útlit fyrir að svo verði ekki ef marka má niðurstöður síðustu kannana.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir „Þjóðin á rétt á að vita“ Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skýrt eftir viðtal við utanríkisráðherra í Íslandi í dag að ríkisstjórnin vilji fyrst fá umboð þjóðarinnar og síðan ákveða endanleg samningsmarkmið. Guðrún segist treysta þjóðinni. 14. ágúst 2026 13:26 „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Umhverfis- og orkumálaráðherra segir engan vafa í sínum huga að möguleikar Íslands til að verja hagsmuni sína hvað varðar losunarheimildir í flugsamgöngum væru meiri innan ESB, jafnvel þó Ísland væri aðeins umsóknarríki. Rík hefð hafi myndast fyrir samstöðumenningu í stjórnarfyrirkomulagi ESB. 15. ágúst 2026 14:01 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Fleiri fréttir Breytingarnar haft verulegt rask á heilbrigðiseftirlit Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Sjá meira
„Þjóðin á rétt á að vita“ Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skýrt eftir viðtal við utanríkisráðherra í Íslandi í dag að ríkisstjórnin vilji fyrst fá umboð þjóðarinnar og síðan ákveða endanleg samningsmarkmið. Guðrún segist treysta þjóðinni. 14. ágúst 2026 13:26
„Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Umhverfis- og orkumálaráðherra segir engan vafa í sínum huga að möguleikar Íslands til að verja hagsmuni sína hvað varðar losunarheimildir í flugsamgöngum væru meiri innan ESB, jafnvel þó Ísland væri aðeins umsóknarríki. Rík hefð hafi myndast fyrir samstöðumenningu í stjórnarfyrirkomulagi ESB. 15. ágúst 2026 14:01