Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Sindri Sverrisson skrifar 19. ágúst 2026 08:32 Rodri var kynntur til leiks hjá Barcelona í gær. Getty/Eric Alonso José Mourinho blæs á allt tal um það að val Rodri, besta leikmanns HM, um nýtt félag sé eins og sigur Barcelona á Real Madrid.
The Athletic segir að forráðamenn hjá Real Madrid hafi verið sannfærðir um að þeir myndu landa Rodri í sumar, eftir að ljóst varð að hann vildi færa sig frá Manchester City. Rodri endaði hins vegar á að velja Barcelona og var kynntur sem nýjasti leikmaður félagsins í gær. Mourinho, sem tók að nýju við Real Madrid í sumar, segist hins vegar ekki syrgja þetta og telur leikmannahóp sinn nú fullskipaðan fyrir veturinn. „Nei, ég sakna ekki Rodrigo. Við höfum lausnir, við höfum gæði, við höfum leikmenn sem þú horfir kannski á og dæmir út frá því sem þeir hafa gert, en mér finnst gaman að hugsa að ég hafi hæfileikann til að bæta leikmenn. Leikmaður sem er eitt í dag getur verið annar leikmaður á morgun,“ sagði Mourinho í viðtali í El Chiringuito. Aðspurður hvort hann teldi Börsunga hafa viljað taka Rodri frá Real Madrid svaraði Mourinho: „Nei, ég held ekki... ég veit það ekki.“ Mourinho gerði sitt til að sannfæra Rodri um að koma til Real en segist svo hafa farið að efast um að rétt væri að fá hann. „Já, ég talaði við hann nokkrum sinnum og Real Madrid gerði honum mjög gott tilboð. Ég held að það sé mjög gott samband við City. Án þess að semja við City hafði félagið samband við Rodrigo og gerði honum mikilvægt tilboð. Rodrigo var í vafa, hann hikaði... og efasemdir Rodrigo vöktu efasemdir hjá mér. Hann er einstakur leikmaður og hann kom fram við okkur með óaðfinnanlegum hætti, svo ég hef ekkert neikvætt að segja. En Real Madrid er á því stigi að þú getur ekki haft leikmenn sem þurfa að hugsa sig tvisvar um. Þú hefur samband við leikmanninn og hann spyr þig: „Hvenær á ég að vera mættur?“ Það er hugmyndin,“ sagði Mourinho en kvaðst þó óska Rodri alls hins besta. Niðurstöðunni er lýst sem sigri Barcelona yfir Real Madrid en Mourinho gefur lítið fyrir það: „Sigrar nást á vellinum. Þar eru bikararnir. Það er þar sem sigrarnir eru.“
Spænski boltinn Enski boltinn FC Barcelona Real Madrid CF Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira