Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Áróra L Davíðsdóttir skrifar 22. ágúst 2026 15:05 Kristján Loftsson eigandi Hvals hf. og Paul Watson, forsprakki Paul Watson samtakanna. Samsett Paul Watson krefst endurupptöku á beiðni Hvals hf. um kyrrsetningu skipsins Bandero á grundvelli laga um kyrrsetningu en augljóst sé að þeim hafi ekki verið framfylgt. Félagið sem á Bandero hafi ekki verið gert vart við kyrrsetningarbeiðni Hvals hf. og því ekki gefist tækifæri til að mótmæla kröfu Hvals áður en kyrrsetningu lauk.
Paul Watson, aðgerðarsinni og stofnandi Watson samtakanna, og Atlantic Marine Industries LLC, félagið sem á skipið Bandero, hafa falið íslenskri lögmannsstofu að krefjast þess að kyrrsetning Banderos verði endurupptekin á grundvelli laga um kyrrsetningu. Á fimmtudaginn kyrrsetti Sýslumaðurinn á Vesturlandi, að kröfu Hvals hf., skipið Bandero. Í endurupptökubeiðni lögmannsstofunnar til Sýslumannsins á Vesturlandi sem fréttastofa hefur undir höndum segir að hvorki félaginu né lögmanni þess hafi verið tilkynnt um beiðni Hvals hf. um kyrrsetningu skipsins og því hafi ekki gefist tækifæri til mótmæla. Þann 14. ágúst hafi Hvalur hf. lagt fram beiðni um kyrrsetningu skipsins Bandero til tryggingar meintri skaðabótakröfu. Hvalur hf. telur sig eiga skaðabótakröfu á hendur eiganda skipsins og verður það kyrrsett til tryggingar fullnustu kröfunnar. Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf. sagði í tilkynningu að skip Hvals hefðu ítrekað þurft að hverfa frá áætluðum siglingaleiðum með tilheyrandi fjártjóni. Hann nefnir sérstaklega að aðgerðir áhafnarinnar hafi kostað félagið í formi aukins olíukostnaðar. Skipið hafi sætt farbanni þegar kyrrsetningin var framkvæmd Fallist hafi verið á kröfur Hvals hf. um að víkja frá því að tilkynna Atlantic Marine Industries LLC, um kyrrsetninguna. Sú krafa hafi verið reist á þeirri ætluðu hættu að skipinu yrði siglt frá Íslandi yrði félagið vart við fyrirhugaða kyrrsetningu. Félagið telji augljóst að skilyrði laga hafi ekki verið uppfyllt þegar kyrrsetningunni var framfylgt á fimmtudaginn síðasta, þann 20. ágúst, sér í lagi þar sem skipið sætti farbanni. Hvalur byggi mál sitt að verulegu leyti á því að Bandero sé erlent skip sem geti yfirgefið íslenska lögsögu með skömmum fyrirvara. Þessi forsenda standist ekki þar sem skipinu hafi þegar verið óheimilt, af hálfu íslensks stjórnvalds, að sigla úr höfn og ekki hafi legið fyrir ákvörðun um að aflétta farbanninu þegar kyrrsetningar var krafist. Í lögum sé kveðið á um heimild til þess að víkja frá tilkynningarskyldu ef ekki er vitað hvar sá sem sætir kyrrsetningu hefst við. Í beiðni Hvals hafi Atlantic Marine Industries hins vegar verið tilgreint, ásamt heimilisfangi og umboðsmanni þess. Þrátt fyrir þetta hafi verið fallist á kröfur Hvals um að víkja frá tilkynningarskyldunni. Ekki eignartjón heldur aukin rekstarútgjöld Sýslumaður hafi áður krafið félagið um fimm milljóna króna tryggingu vegna mögulegrar skaðabótaábyrgðar og Hvalur hafi lagt fram ábyrgðaryfirlýsingu Landsbankans fyrir þeirri upphæð. Kyrrsetningin geti haft verulega röskun í för með sér og geti valdið umtalsverðu fjárhagslegu tjóni. Félagið áskilji sér því rétt til skaðabóta reynist kyrrsetningin hafa verið framkvæmd án þess að lögbundin skilyrði væru fyrir hendi. Í kröfu Hvals um skaðabætur Atlantic Marine Industries LLC, sem hafi alfarið falist í auknum eldsneytiskostnaði vegna breyttra siglingarleiða, sé tjóninu lýst sem „rekstrartjóni“ og „beinu fjárhagslegu tjóni.“ „Með eignartjóni er átt við tjón á tiltekinni eign eða missi hennar, en ekki hvers kyns fjárhagslegt óhagræði, aukin rekstrarútgjöld eða tekjumissi,“ segir í endurupptökubeiðninni. Ekkert tjón hafi orðið á skipum Hvals hf. í tilraunum Watson-samtakanna til að stöðva hvalveiðar. Krafan sé því einungis reiknuð út frá ætluðum viðbótarkostnaði og því sé ekki um að ræða bætur fyrir eignartjón, heldur aukin rekstrargjöld eða hreint fjártjón. „Eldsneytið skemmdist ekki, eyðilagðist ekki og glataðist ekki vegna utanaðkomandi skaðverks.“ Samkvæmt gerðarbeiðni Hvals hafi skipstjóri og stjórnendur Hvals ákveðið að breyta siglingarleiðum Hvals vegna opinberra yfirlýsinga Watson-samtakanna, eigin áhættumats og áhyggna skipverja. Ákvarðanir stjórnenda um að haga eigin rekstri hafi verið teknar vegna ótta við hugsanleg framtíðaratvik.
Hvalir Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hafnarmál Dómsmál Akranes Tengdar fréttir Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, var dregið úr höfn í gærkvöldi og til Akraness. Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum, sagði við mbl.is í gærkvöldi að búa ætti til pláss við höfnina. Um rekstrarlega ákvörðun hafi verið að ræða. 18. ágúst 2026 07:32 Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Skipverji á Bandero segir aðstæður um borð ómannsæmandi. Lítið hafi verið um mat síðustu daga og áhafnarmeðlimir neyðst til að ganga örna sinna í vaska um borð. Aðstoðarlögreglustjóri segir að öllum skipverjum verði gert kleift að ganga frá borði. 4. ágúst 2026 19:33 Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Sinnt útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Sjá meira
Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Bandero, skip Paul Watson-samtakanna, var dregið úr höfn í gærkvöldi og til Akraness. Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum, sagði við mbl.is í gærkvöldi að búa ætti til pláss við höfnina. Um rekstrarlega ákvörðun hafi verið að ræða. 18. ágúst 2026 07:32
Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Skipverji á Bandero segir aðstæður um borð ómannsæmandi. Lítið hafi verið um mat síðustu daga og áhafnarmeðlimir neyðst til að ganga örna sinna í vaska um borð. Aðstoðarlögreglustjóri segir að öllum skipverjum verði gert kleift að ganga frá borði. 4. ágúst 2026 19:33