Myndaveisla: Leynigestir og innlifun á stórafmælistónleikunum Freyja Þórisdóttir skrifar 25. ágúst 2026 12:10 Það var stjörnufans á stórafmælistónleikum Bylgjunnar á Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst. Hulda Margrét Fjörutíu ára afmælistónleikar Bylgjunnar voru haldnir í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Stórstjörnur líkt og Friðrik Dór, Birgitta Haukdal og Stebbi Hilmars voru meðal þeirra sem stiga á svið en stemningin var gríðarleg þrátt fyrir rigningu og rok.
Útvarpsstöðin Bylgjan fór fyrst í loftið 28. ágúst 1986 og voru tónleikarnir í ár því sannkallaðir stórafmælistónleikar þar sem fjörutíu ár voru liðin frá þeim fyrstu. Í tilefni var engu til sparað og meðal þeirra sem fram komu voru Stefán Hilmarsson, Birgitta Haukdal, Kristmundur Axel, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Bandmenn, Friðrik Dór, Á móti sól og svo lokuðu strákarnir í FM95BLÖ kvöldinu. Vísir var að sjálfsögðu með ljósmyndara á svæðinu en hér fyrir neðan má skruna í gegnum nokkrar af þeim mörg hundruð myndum sem teknar voru á meðan tónleikunum stóð. Stebbi Hilmars verður bara meiri og meiri töffari með árunum.Hulda Margrét Danshöfundurinn Birna Björnsdóttir stillir sér upp með mæðgunum Ernu Hrönn og Silju Sól.Hulda Margrét Þessir gestir ætluðu ekki að taka annað í mál en að vera fremst.Hulda Margrét Guðjón Smári og Ólafur eru perluvinir og fyrrverandi samstarfsfélagar.Hulda Margrét Tónlistarmaðurinn Kristmundur Axel flutti mörg af sínum þekktustu lögum á tónleikunum en áhorfendur öskursungu með laginu Komdu til baka.Hulda Margrét Birgitta Haukdal var með fagurt fylgdarlið í græna tjaldinu en eiginmaður hennar Benedikt Einarsson og dóttir þeirra Saga Júlía létu sig ekki vanta.Hulda Margrét Sumir kappkostuðu að ná stjörnunum á myndbandsupptöku svo það væri hægt að deila gleðinni með þeim sem áttu ekki heimangengt.Hulda Margrét Útvarpsmaðurinn og skemmtikrafturinn Andri Björnsson tryllti lýðinn.Hulda Margrét Söngvarinn Júlí Heiðar tróð óvænt upp á tónleikunum ásamt Kristmundi Axel og Bandmönnum.Hulda Margrét Sumir sáu betur á sviðið en aðrir.Hulda Margrét „Viltu lagið þitt númer eitt á lista? Hringd'í mig, Hringd'í mig Best að hringja í Frikka,“ segir í lagatexta Labbilabb sem Friðrik Dór syngur inn á ásamt rapparanum Herra Hnetusmjör.Hulda Margrét Páll Sævar, Þórdís Vals, Hermann, Agnes Ýr, Ómar Úlfur og Stefán nutu sín í græna tjaldinu á milli atriða.Hulda Margrét Söngdívan Birgitta Haukdal var eitursvöl að vanda.Hulda Margrét Stefán og Erna kölluðu fram gríðarleg fagnaðarlæti þegar þau buðu meðlimi Á móti sól velkomna á svið.Hulda Margrét Raddbönd sumra áhorfenda fengu að kenna á því.Hulda Margrét Það voru eflaust einhverjir áhorfendur sem fundu fyrir votti af nostalgíu þegar Á móti sól tók nokkra af eldri slögurum sínum svo sem Djöfull er ég flottur.Hulda Margrét Strákarnir í FM95BLÖ voru meðal þeirra síðustu sem stigu á svið en það fannst ekki á þeim að það væri þreyta í liðinu enda er talað um að Steindi sé með fyrirliðabandið þegar kemur að stemningu.Hulda Margrét Aftast í Hljómskálagarðinum var aðeins meira andrými fyrir þá tónleikagesti sem njóta sín ekki í mannþröng.Hulda Margrét Pétur Jóhann lék listir sínar af öllum lífs og sálar krafti.Hulda Margrét Sviðsmaður íslensku þjóðarinnar og Kristmundur Axel hvor öðrum flottari.Hulda Margrét Rapparinn Sain Pete, sem heitir réttu nafni Pétur Már Guðmundsson, var leynigestur.Hulda Margrét
Menningarnótt Tónleikar á Íslandi Reykjavík Samkvæmislífið Tengdar fréttir Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Fjörutíu ára afmælistónleikar Bylgjunnar verða haldnir í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Stórstjörnur líkt og Friðrik Dór, Birgitta Haukdal og Stebbi Hilmars munu stíga á svið. 21. ágúst 2026 14:17 Mest lesið „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Stjörnum prýtt svitapartý Lífið Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Lífið Harington tekur við af uppteknum Hoult Bíó og sjónvarp Myndaveisla: Græna tjaldið, gestagangur og grenjandi gleði Tónlist Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Bíó og sjónvarp Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Græna tjaldið, gestagangur og grenjandi gleði Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Fór á fimm tónleika Ariönu Grande á viku Dimma búin að fylla í skarð Stebba Jak Gestafjöldi fjórfaldaðist á Kveldúlfi Kanye treður upp í Rússlandi Hip-hop sveitin Tha Alkaholiks í Iðnó í október Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Heiður að endurvekja falda perlu Palla Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Suki dásamar Laufeyju Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Sjá meira
Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Fjörutíu ára afmælistónleikar Bylgjunnar verða haldnir í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Stórstjörnur líkt og Friðrik Dór, Birgitta Haukdal og Stebbi Hilmars munu stíga á svið. 21. ágúst 2026 14:17