Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Kjartan Kjartansson skrifar 26. ágúst 2026 13:11 Skjáskot úr auglýsingu Good Good og Callaway. Þar sést leiðtogi hópsins hrinda konu í jörðina sem reynir að taka dræver úr golfpoka. Skjáskot Verslanir hafa tekið varning frá golfáhrifavöldunum í Good Good úr sölu vegna auglýsingar þar sem forsprakki hópsins sást hrinda konu í jörðina. Bæði forstjóri Good Good og Callaway-kylfuframleiðandans hafa beðist afsökunar á auglýsingunni.
Good Good er með milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum og hefur verið framarlega í vaxandi hópi golfáhrifavalda á Youtube á undanförnum árum. Ný auglýsing fyrir Callaway-dræver merktan Good Good mæltist hins vegar álíka vel fyrir og snara sem er nefnd í hengds manns húsi. Í henni sást Garrett Clark, forsprakki hópsins, hrinda konu í jörðina þegar hún reynir að taka dræverinn úr golfpoka. „Ekki snerta nýja dræverinn minn,“ segir Clark þar sem hann stendur yfir Alexis Miestowski, liðskonu Good Good. Viðbrögðin við auglýsingunni voru slík að Good Good og Callaway fjarlægðu hana seint á föstudag. Þeir sem töldu auglýsinguna ekki beinlínis ýta undir kynbundið ofbeldi voru á því að hún væri bæði ófyndin og léleg. Ah man, someone must have accidentally deleted the post. Don’t worry Good Good, I’ll reupload your @CallawayGolf ad! pic.twitter.com/I4GwzBmUOJ— Jay Don Takes (@Skulledwedge) August 22, 2026 „Það krefst svo margra heimskulegra ákvarðana að þetta líti dagsins ljós,“ skrifaði Kevin van Valkenburg, blaðamaður hjá golfmiðlinum Fried Egg, sem furðaði sig á að enginn sem tengdist Good Good og Callaway hefði áttað sig á að þetta væri ekki besta leiðin til þess að selja golfkylfu. „Ekki að ég vilji gera þetta að stórmáli en hvað í ósköpunum á ungum stúlkum að finnast þegar þær sjá eitthvað eins og þetta?“ skrifaði Claire Rogers, blaðakona hjá Skratch Golf. Tvær afsökunarbeiðnir Good Good baðst afsökunar á að auglýsingin sem birtist hefði ekki samræmst gildum þeirra sem vörumerkis. Callaway sagðist hafa orðið „fyrir vonbrigðum“ með auglýsinguna en að fyrirtækið væri ánægt með að Good Good hefði brugðist hratt og vel við. Þessar afsökunarbeiðnir þóttu heldur mélkisulegar, svo mjög að bæði Good Good og Callaway báðust aftur afsökunar á auglýsingunni í gær. Þar viðurkenndi Chip Brewer, forstjóri Callaway, að þó að Good Good hefði framleitt auglýsinguna þá hefði fyrirtæki hans gefið grænt ljós á hana. Our statement on the recent driver ad that we decided to remove: pic.twitter.com/oFxO3eFZV1— Good Good Golf (@goodgood_golf) August 22, 2026 „Það hefði aldrei átt að samþykkja þetta. Mistök áttu sér stað og við tökum þessu máli mjög alvarlega,“ sagði í yfirlýsingu Brewer sem var birt síðla kvölds. Matt Kendrick, forstjóri Good Good, sagði í sinni yfirlýsingu að auglýsingin hefði átt að vera vísun í hryllingsmyndina „Obsession“ en hún hefði misst marks. PGA-mót kennt við Good Good í nóvember Uppákoman er ekki síst óheppileg fyrir Callaway þar sem fyrirtækið er opinber bakhjarl LPGA-mótaraðar kvenna. Hún setur PGA-mótaröðina einnig í snúna stöðu því mót sem verður haldið í Texas í nóvember verður kennt við Good Good. Brian Rolapp, forstjóri PGA-mótaraðarinnar, sagði hvorki Callaway né Good Good hafa axlað nægilega ábyrgð á mistökunum í upphafi en að seinni afsökunarbeiðnirnar hefðu verið nær lagi. „Þetta er svolítið breytileg staða. Við urðum fyrst fyrir vonbrigðum. Það hljómar eins og þeir hafi náð vissum árangri síðasta sólarhringinn. Við höldum áfram að fylgjast með stöðunni, sjá hvernig hún þróast,“ sagði Rolapp á blaðamannafundi í gær þar sem hann var spurður út í Good Good-mótið.
Samfélagsmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Golf Bandaríkin Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Fleiri fréttir Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar „Auðvitað var auka hjartsláttur“ Óliver heldur áfram að slá í gegn Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? LIV-mótaröðin í uppnámi en Rory Mcllroy ekki spenntur að fá kylfinga þaðan Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Óliver: „Mjög mikill heiður“ Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn McIlroy áhyggjufullur eftir erfiða reynslu Óliver var með funheitan pútter Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Óliver kominn í undanúrslit á sterku móti Efnilegur ástralskur kylfingur lést aðeins átján ára Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti „Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Sjá meira