Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. ágúst 2026 13:26 Ade Murkey lék með Álftanesi á síðasta tímabili. Vísir / Diego Tindastóll hefur samið við bandaríska bakvörðinn Ade Murkey fyrir komandi tímabil í Bónus deild karla í körfubolta. Hann kemur inn í leikmannahópinn í stað Jalen Adaway sem hafði samið við Tindastól en mun ekki koma hingað til lands.
Adaway „lenti í veseni með vegabréfið“ og Tindastóll „missti þolinmæðina,“ sagði Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, í samtali við Vísi. Adaway vakti athygli þegar hann samdi við Tindastól en hann hafði áður verið rekinn úr G-deild NBA fyrir að falla á lyfjaprófi. Tindastóll ákvað því að semja við Ade Murkay, sem er áhorfendum Bónus deildarinnar vel kunnugur en hann spilaði með Álftanesi á síðasta tímabili. Murkey var með 23.3 stig, 7.7 fráköst og 2.9 stoðsendingar að meðaltali í 14 leikjum fyrir Álftanes. „Murkey er öflugur bakvörður/vængmaður sem kemur með mikla reynslu úr atvinnumennsku, meðal annars úr NBA G-deildinni, þar sem hann hefur leikið með liðum á borð við Iowa Wolves, Stockton Kings og Wisconsin Herd. Hann á einnig að baki leik með Sacramento Kings í NBA-deildinni og verður þar af leiðandi annar leikmaður í sögu Tindastóls sem á leik í NBA. Hinn leikmaðurinn var Pétur Guðmundsson, sem kom til Tindastóls árið 1990 frá Bandaríkjunum. Murkey er 196 cm hár leikmaður, fæddur árið 1998 í Minneapolis í Bandaríkjunum, og lék háskólakörfubolta með Denver Pioneers. Hann hefur á ferlinum sýnt styrk sinn sem fjölhæfur leikmaður sem getur skorað, skapað fyrir aðra og lagt mikið til varnarlega,“ segir í tilkynningu Tindastóls.
Bónus-deild karla Tindastóll Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Valur – Keflavík | Finna Keflavíkurkonur týndu klærnar? „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Sjá meira