Handbolti

Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næst­efstu deild

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gísli verður með liðið næstu tvö árin.
Gísli verður með liðið næstu tvö árin.

Gísli Steinar Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víkingi og hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Samningurinn gildir til ársins 2028.

Gísli Steinar er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og hefur víðtæka reynslu af þjálfun í handbolta. Hann hefur undanfarin ár stýrt 3. og 4. flokki kvenna hjá ÍBV.

Þá hefur hann einnig þjálfað yngri flokka kvenna hjá Fjölni og komið að þjálfun meistaraflokks kvenna hjá félaginu.

Áður en Gísli Steinar hóf störf sín hér á landi bjó hann í Noregi þar sem hann þjálfaði yngri flokka hjá Fet IL í sex ár.

Víkingar tjáðu sig í dag með yfirlýsingu um þá ákvörðun að draga liðið úr efstu deild og spila í þeirri næstefstu. Hér að neðan má lesa þá yfirlýsingu:

Á fundi stjórnar handknattleiksdeildar Víkings var samþykkt að óska eftir því við HSÍ að lið meistaraflokks kvenna í handbolta fengi sæti í Grill 66-deild kvenna á komandi tímabili. Beiðni Víkings hefur nú verið samþykkt af hálfu HSÍ.

Það er einróma afstaða stjórnar handknattleiksdeildar að það samræmist betur metnaðarfullri vegferð félagsins að ungt lið meistaraflokks kvenna leiki í Grill 66 deild kvenna tímabilið 2026/2027. Lið Víkings samanstendur af ungum og efnilegum leikmönnum sem eru um leið metnaðarfullir og láta hag og framgang meistaraflokks kvenna sig mikið varða. Liðið er á spennandi en krefjandi stað í uppbyggingu sinni og er félaginu annt um að tryggja veg og vanda liðsins sem best, bæði innan vallar sem utan. Á sama tíma er mikill vöxtur í yngri flokka starfi Víkings, bæði hjá strákum og stúlkum, en iðkendur er nú um 550 talsins. Því er gríðarlega mikilvægt að vel sé haldið utan um uppbyggingu handboltastarfs í félaginu og er það trú handknattleiksdeildar að þessi niðurstaða sé best til þess fallin að byggja áfram upp öflugt handboltastarf í félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×