Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar 28. ágúst 2026 12:51 Ég starfa í Frístundamiðstöðinni Miðbergi og hef gert samfellt síðan árið 2003 og hjarta mitt slær þar. Undir Miðberg heyra svo 6 frístundaheimili, 4 félagsmiðstöðvar og ungmennahús. Saman höfum við myndað þessa heild sem er Miðberg og markmið okkar er að vinna í þágu barna og ungmenna í Breiðholti og fyrir hverfið í heild sinni. Á mínum starfstíma í Miðbergi hef ég upplifað ýmsar breytingar og borgarstjórnir komið og farið með mismundandi áherslur eins og eðlilegt er. Aldrei hef ég þó fyrr upplifað aðra eins aðför að mínu fagi eins og núna. Með einu pennastriki var frístundamiðstöðin okkar lögð niður og yfirmenn okkar reknir. Skipulag Miðbergs er með þeim hætti að þar er einn framkvæmdastjóri, tveir deildarstjórar og fjármálastjóri sem miðlægt styðja við okkur sem vinnum úti á vettvangi. Þetta fólk var rekið með skammarlegum hætti fyrr í vikunni í nafni sparnaðar. Frístundamiðstöðin er stoðkerfið mitt og kollega minna í starfinu. Þau samhæfa það sem við erum að gera. Frístundamiðstöðin er vettvangurinn þar sem við komum saman með hagsmuni hverfisins í huga. Við deilum þekkingu, reynslu og hæfileikum. Við vinnum stór samstarfsverkefni saman, stundum á vettvangi frístundaheimilanna eða félagsmiðstöðvanna eingöngu en líka vinnum við ýmis verkefni þvert á frístundaheimilin og félagsmiðstöðvarnar. Við deilum líka með okkur mannauði, höfum haft hjá okkur hæfileikaríkt fólk sem getur unnið sérhæfð verkefni og flakkað með þau á milli frístundaheimila og félagsmiðstöðva svo dæmi séu tekin. Deildarstjórarnir okkar eru þær manneskjur sem við hringjum í til að fá aðstoð með þungu málin, alvarlegu atvikin, starfsmannamálin og svo ótalmargt annað og eru ómetanlegur stuðningur við störf forstöðufólks frístundaheimila og félagsmiðstöðva. Verkefni þessa fólks hverfa ekki, þau rúlla áfram, þeim þarf að sinna og líklega mun stór hluti þeirra falla á forstöðufólk sem þar með hefur enn minni tíma á gólfinu með börnunum og ungmennunum. Það segir mér enginn að á endanum bitni þetta ekki á börnunum og ungmennunum og þjónustan skerðist að einhverju leyti. Í Miðbergi höfum við haft þétt samstarf á milli allra frístundaheimilanna og félagsmiðstöðvanna í hverfinu, þetta samstarf verður aldrei eins þétt þegar hver eining er orðin sjálfstæð án frístundamiðstöðvarinnar. Núna tilheyrum við stórum hópi allra frístundaheimila og félagsmiðstöðinni í borginni í stað þess að vinna þétt saman að málefnum okkar hverfis, saman sem Miðberg. Ég er áhyggjufull yfir því að í stað þess að gefa í þá séum við í bakslagi í frístundastarfi í borginni. Ég hef áhyggjur af því að við munum ekki geta þjónustað krakkana okkar með sama hætti og áður. Reykjavíkurborg hefur verið leiðandi í frístundastarfi á landsvísu sem eðlilegt er enda höfuðborgin okkar. Hvert stefnum við núna? Ætlum við að stíga skref aftur á bak? Hver tapa á því? Það eru á endanum börnin okkar og ungmennin sem tapa, er það ásættanlegur fórnarkostnaður til að excelskjalið líti betur út? Höfundur er aðstoðarforstöðukona frístundaheimilisins Regnbogans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frístund barna Reykjavík Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar