Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar 28. ágúst 2026 15:53 Ég er hugsi. Ég hef fengið veður af því að nýjasta vopn nei-hliðarinnar sé að vekja efasemdir um það hvort hægt sé að treysta Þorgerði Katrínu og Kristrúnu. Það er markvisst verið að búa til þá mynd að ekki sé hægt að treysta þeim fyrir vegferðinni. Að þær geti ekki haldið fókus á innanríkismálin. Að hugurinn sé bara í Brussel. Að ekki sé hægt að treysta þeim fyrir því að boða til annarrar atkvæðagreiðslu um aðild, segi þjóðin já núna. Ég er að fá skilaboð frá fólki sem segir að á þeirra vinnustað sé verið að ræða hvort það sé hægt að treysta stjórnmálaleiðtogum til að standa við sitt. Ég skil það, enda er sagan stútfull af dæmum um annað frá fyrri ríkisstjórnum. En þegar betur er að gáð þá er núverandi ríkisstjórn einfaldlega að standa við gefin loforð. Það stendur í stjórnarsáttmála að það eigi að fara þessa leið og þær eru ekki hræddar við það. Að standa við loforðin. Snýst þetta bara um að skora stig? Ég horfði til að mynda á sérstaka klippu af Sigmundi Davíð, vara við því að ef fólk segði já þá yrði Þorgerður svo agalega valdamikil og að Kristrún væri þess vegna að vonast til þess að fá nei. Þegar staðreyndin er sú að Þorgerður mun ekki fara til Brussel að semja segi þjóðin já, í það verk verður sérstök samninganefnd landsins valin. Ráðherrar og þingmenn ríkisstjórnar munu halda ótrauð áfram sinni mikilvægu vinnu fyrir land og þjóð. Það er hægt að gera tvennt í einu. En umræðan er á þessu plani og Það er erfitt að skynja hana öðruvísi en að flokkapólitíkin hafi fengið óþarflega stórt pláss. Að það sé kappsmál að höggi á ríkisstjórnina og að grafa undan henni. Þegar umræðan færist frá því sem spurt er um yfir í það hvort treysta megi einstökum stjórnmálamönnum og því blandað við ótrúlegan hræðsluáróður og þvætting og hreinar lygar þá erum við komin inn á allt annan völl. Segir það ekki meira um hugarfar þessara stjórnmálaleiðtoga að þetta snúist um völd og hagsmuni en ekki afstöðu til spurningarinnar sem nú er undir? Þjóðaratkvæðagreiðslan sem fer fram á morgun er svo miklu stærri en persónur og leikendur. Miklu stærri en flokkakerfið og miklu stærri en hagsmunirnir sem liggja undir. Hún er okkar tærasta birtingarmynd af lýðræði. Það er fallegt og það er þroskandi að taka þátt í þannig ferli. En tölum aðeins um heiðarleika. Tölum aðeins um það að standa við loforð.Brotin loforð – munum söguna Árið 2013 var kosið til Alþingis. Ég man vel eftir þessum kosningum. Þarna hafði Ísland staðið í aðildarviðræðum við Evrópusambandið frá 2009 þegar ríkisstjórn Samfylkingar og VG ákváðu að hefja þá vegferð sem tæknilega stendur enn yfir. Kosningabaráttan snerist að mörgu leyti um það hvað yrði um aðildarviðræðurnar. Þar fullyrtu þeir félagar Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð ítrekað að ekki yrði haldið áfram nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.Var staðið við það loforð? Svarið er nei.Var Alþingi spurt þegar þeir settu umsóknina á ís? Svarið er nei.Var þjóðin yfirhöfuð spurð? Svarið er nei. Allar götur síðan hefur þjóðin verið klofin. En nú er tækifæri til að snúa því við. Ekki með því að treysta stjórnmálamönnum í blindni. Heldur með því að treysta þjóðinni. Það er það sem þessi ríkisstjórn þorir að gera. Hún lofaði þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún stendur við það.Hún lofaði að fara þessa leið. Hún stendur við það.Hún treystir þjóðinni. Þið fáið að ákveða. Loksins. Það finnst mér heiðarleg nálgun. Þess vegna finnst mér sérstakt að helsta vopn nei-hliðarinnar sé nú að reyna að sannfæra ykkur um að treysta ekki fólkinu sem er að færa ákvörðunina til ykkar. Hverjum treystir þú? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein María Rut Kristinsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á lokaorðið? Hópur meðlima í Ungum gegn ESB-aðild Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Sjá meira
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar