Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Smári Jökull Jónsson skrifar 31. ágúst 2026 08:16 Kona situr hér fyrir utan heimili sitt sem er ónýtt eftir flóðin. Vísi/Getty Tala látinna í Nepal hækkar sífellt og er yfir fjögur þúsund manns saknað eftir hamfaraflóðin í síðustu viku. Þá er yfir fimm hundruð manns enn saknað í Tíbet og líkurnar á að finna fólk á lífi dvína eftir því sem tímanum líður.
Heilu byggðirnar voru þurrkaðar út í flóðunum og skriðunum sem fylgdu þeim í kjölfarið. Flóðin byrjuðu í Himalæjafjöllum, Tíbetmegin, á jökulhruni, þar sem stór jökull féll og kom flóðunum og skriðunum af stað. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu BBC hefur er tala látinna nú komin yfir níu hundruð sem er umtalsvert meira en áður var talið. Þá er 4.247 manns saknað og þar af eru 3.655 nepalskir ríkisborgarar en 592 erlendir. Á meðal þeirra sem saknað er eru um þúsund starfsmenn vatnsaflsvirkjana sem voru við störf þegar flóðin féllu en talið er að margir séu fastir í göngum virkjananna og reynir björgunarfólk nú að komast inn í göngin. Um helgina komu björgunarmenn til Nepal frá Kína og Indlandi sem sérhæfðir eru í leit í göngum. Talsmaður tíbetska hersins segir björgunaraðgerðina afar krefjandi þar sem jarðvegur hafi lokað göngunum og að áhersla verði lögð á að opna þau sem fyrst. Talið er að flóðin hafi skemmt að minnsta kosti tólf virkjanir á svæðinu. Ákvörðunin bjargaði lífi hundruða Þá eyðilögðust tugir skóla þegar þeim skolaði burt í flóðunum en skólastjóri í einum skóla í Nepal rýmdi bygginguna örskömmu áður en flóðið skall á skólabyggingunni. Hafði hann þá fengið viðvaranir frá fólki sem statt var á svæðum ofar í dalnum. Talið er að ákvörðun hans hafi bjargað lífi 1.600 manns. Jafnframt greinir BBC frá því að unnið sé að því að bera kennsl á látna og eru tekin DNA sýni sem síðan verða borin saman við sýni úr fjölskyldumeðlimum síðar. Nærri tvö hundruð manns voru bornir til grafar í Nepal í gær og til stendur að jarðsetja um sjötíu til viðbótar í dag. Samkvæmt sænska ríkismiðlinum SVT hafa stjórnvöld fengið gagnrýni þar sem margir vilja meina að björgunaraðgerðir taki langan tíma. Meðal annars á herinn í Nepal að hafa átt í vandræðum með hitamyndavélar í drónum sem notaðir eru til að finna fólk á lífi. Líkurnar á því að finna fólk á lífi dvína eftir því sem tíminn líður en enn eru bundnar vonir við að fólk sé á lífi í útjaðrinum á því svæði sem flóðin fóru yfir.
Nepal Náttúruhamfarir Tíbet Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira