Lífið

Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Ís­landi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Michele fagnaði því að verða 40 ára á Íslandi.
Michele fagnaði því að verða 40 ára á Íslandi. Vísir/EPA og Instagram

Leik- og söngkonan Lea Michele fagnaði 40 ára afmæli sínu á Íslandi. Michele birti mynd á Instagram-síðu sinni í gær með kampavínsflösku og glas í Bláa lóninu.

Starfsmenn Bláa lónsins skrifa við myndina að þau séu glöð að hafa fengið að vera partur af fögnuðinum. Lea á afmæli þann 29. ágúst og er frá New York í Bandaríkjunum. Michele er gift Zandy Reich og á með honum tvö börn. 

Lea, sem varð heimsfræg á einni nóttu þegar hún birtist í hlutverki Rachel Berry í sjónvarpsþáttaröðinni Glee. Eftir að tökum á Glee lauk hefur hún gefið út sólóplötu, Louder, auk þess sem hún talsetti teiknimynd um Dóróteu á leið til Oz. Þá lék hún í síðustu þáttaröð Sons of Anarchy og þáttaröðinni Scream Queens. Frá 2022 hefur hún aðallega leikið á sviði en þá tók hún við hlutverki Fanny Brice í Funny Girl. Síðasta sýning var í september 2023. Í maí í fyrra tók hún svo við hlutverki Florence Vassy í Chess.

Í Nepal hafa yfirvöld einnig fyrirskipað að efni á netinu sem þau telja að innihaldi rangar upplýsingar um flóðin verði fjarlægt.


Tengdar fréttir

Lea Michele mun leika Fanny Brice

Arftaki Beanie Feldstein sem Fanny Brice í Funny Girl á Broadway var kynntur í gær. Leikkonan Lea Michele tekur við hlutverkinu 6. september næstkomandi.

"Þetta var lagið okkar“

Lea Michele gefur út lag af nýrri plötu sinni sem er tileinkað Cory Monteith, sem lést í fyrra.

Lea Michele semur lag um Cory Monteith

Lea Michele, kærasta leikarans Cory Monteith sem lést í júlí á þessu ári úr of stórum skammti, hyggst gefa út plötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.