Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar 7. september 2026 11:30 Það er mikið fagnaðarefni að okkar ágæti fjármálaráðherra Daði Már Kristófersson skuli nú leggja fram frumvarp til fjárlaga með fimm milljarða króna afgangi. Þetta er liðlega 30 milljarða viðsnúningur frá fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram fyrir ári. Það er mikilvægt að endar nái saman í rekstri ríkisins. Það hefur jákvæð áhrif á vaxtastigið í landinu og þegar fram í sækir. Þá mun lækkað skuldahlutfall ríkisins fækka þeim krónum sem fara í afborganir af lánum ríkisins og í vaxtagreiðslur. Lækkun vaxta yrði búhnykkur fyrir skuldsett heimili og getur blásið lifi í byggingariðnaðinn. Frumvarpið gerir ráð fyrir aðhaldi í ríkisútgjöldum samhliða auknum útgjöldum til félags-, húsnæðis- og tryggingamála upp á tæpa 15 milljarða króna. Aukið fjármagn í í almannatryggingar og hjúkrunarheimili Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að bætur almannatrygginga, það er að segja elli- og örorkulífeyrir og bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, hækki um 7,3 prósent frá 1. janúar 2027. Hækkunin byggir á uppfærðri spá um þróun launavísitölu árin 2026 og 2027, ásamt leiðréttingu sem tekur mið af þróun vísitölunnar frá 1. júní 2025, sbr. 62. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007. Þetta er afraksturs frumvarps félags og húsnæðismálaráðherra Flokks fólksins um að ákvörðun bótafjárhæða taka mið af þróun launavísitölu frá þeim degi, þó þannig að þær hækki aldrei minna en sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs. Markmiðið með breytingunum var að tryggja að fatlað fólk, öryrkjar og ellilífeyrisþegar dragist ekki aftur úr öðrum í kaupmætti. Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur verið mótorinn í fjölgun hjúkrunarrýma og hjúkrunarheimila. Framlög til reksturs hjúkrunarheimilda er aukinn um 3,4 milljarða króna að raunvirði í fjárlagafrumvarpi. Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir auknum tekjum meðal annars með afnámi skattaívilnana og hækkuðum bankaskatti. Því hefur verið haldið fram að hækkun bankaskatts muni á endanum lenda á lántakendum. Ofurhagnaður bankanna á undanförnum misserum og árum hefur hins vegar ekki skilað sér í minni vaxtamun eða minni kostnaði almennings og fyrirtækja. Það er ljóst að endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu getur gefið ríkissjóði fleiri krónur með því að taka fyrir brask með veiðiheimildir og undirverðlagningu á t.d. loðnu. Nýjar upplýsingar gefa til dæmis skýrt til kynna að veiðiheimildir í ufsa hafi ekki verið veiddar nema að litlu leyti á síðasta fiskveiðiári. Hér er um að ræða aflaverðmæti upp á um 10 milljarðar króna sem ekki voru veidd og nýtt. Það væri skynsamlegt að breyta leikreglum með þeim hætti að gefa frelsi til veiða á þeim aflaheimildum t.d. í ufa og síld sem að núverandi handhafar veiðiheimildanna hirða ekki um að veiða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Flokkur fólksins Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar