Gulur september, bylting fíflanna Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar 10. september 2026 08:32 Gulur september er árvekniátak um geðheilbrigði, geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Í september beinum við sjónum okkar að mikilvægi þess að hlúa að okkur sjálfum og hvert öðru, sýna samkennd og muna að hrósa hvert öðru. Guli liturinn táknar meðal annars kærleik, lífskraft og von og minnir okkur á að staldra við, taka eftir andartökunum og vera til staðar fyrir hvert annað. Í dag er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga og því er september mikilvægur tími til að vekja athygli á geðheilbrigði og mikilvægi forvarna. Þegar haustið gengur í garð styttast dagarnir og myrkrið umvefur okkur smám saman. Þá skiptir samvera og nálægð. Gulur september býður upp á fjölbreytta dagskrá víða um land. Í ár er sérstök áhersla lögð á ungmenni og þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir. Mér þótti sérstaklega ánægjulegt að sjá kórana í brennidepli, því kórastarf getur skapað mikilvægt rými fyrir fólk til að tengjast öðrum og finna að það tilheyrir. Þegar við syngjum saman lærum við að hlusta hvert á annað, finna okkar eigin rödd og um leið upplifa að við séum hluti af heild. Það getur skipt miklu máli fyrir vellíðan og andlega heilsu. Listir og menning eru félagslegir margfaldarar. Listir og menning styrkja tengsl fólks og auka tilfinningu þess fyrir því að tilheyra. Í gegnum listir skapast rými þar sem við getum hist, tjáð okkur, hlustað og upplifað eitthvað saman. Áhrifin geta því náð langt út fyrir sjálfa upplifunina og stuðlað að bættri samfélagsvelferð og auknum lífsgæðum. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur bent á að listir og menningarupplifanir eru mikilvægar fyrir heilsu og vellíðan. Rannsóknir sýna að þátttaka í listum getur stutt við andlega heilsu og dregið úr streitu. Þar liggur mikilvægt forvarnargildi þeirra. Þær leysa auðvitað ekki allan vanda og koma ekki í stað heilbrigðisþjónustu þegar hennar er þörf, en þær geta gegnt mikilvægu hlutverki í forvörnum og bata. Það er því sérstaklega ánægjulegt að sjá Gulan september tengja sig við listirnar í ár. Mikilvægi ímyndunaraflsins Þegar ég hugsa um gula litinn kemur fífillinn fyrst upp í hugann. Hann er eitt af uppáhaldsblómunum mínum. Hann birtist á vorin, gulur og bjartur, sprettur þar sem ekkert annað virðist geta vaxið og þegar líður á sumarið umbreytist hann í viðkvæma, hvíta frækrónu sem maður leikur sér að blása af og óska sér. Og þegar maður óskar sér virkjar maður ímyndunaraflið. Það er eitt mikilvægasta aflið sem við búum yfir, hæfileikinn til að sjá möguleika, skapa og ímynda sér eitthvað sem enn er ekki orðið til. Og þar býr vonin. Bandalag íslenskra listamanna er stoltur samstarfsaðili Guls septembers og hvetur alla, jafnt listafólk sem menningarstofnanir, til að taka þátt. Við skulum gefa ímyndunaraflinu rými, hlúa að voninni og skapa saman samfélag þar sem fólk finnur að það tilheyrir. Höfundur er forseti bandalags íslenskra listamanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar