Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar 13. september 2026 09:02 Þversögn íslenskra varna blasir við almenningi. Annars vegar ríkir yfirlýstur og staðfastur vilji meirihluta þjóðarinnar að standa vörð um fullveldi og sjálfstæði Íslands og verja með kjafti og klóm eins og nýfafstaðinn þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB ber vitni um og hins vegar áberandi áhugaleysi stjórnvalda og almennings um öryggi og varnir landsins sem kristallast í algjörri útvistun á landvörnum til erlendra aðila. Íslendingar ætla ekki að verja Ísland ef á það er ráðist, það eiga aðrir að gera. Erlendir aðilar eins og Bandaríkjamenn samkvæmt varnarsamningi landanna og Atlantshafsbandalagið ef samstaða næst um að virkja 5. grein aðildarsáttmálans – sem ekki er sjálfsagt mál og krefst samþykki allra aðildarþjóða. Þetta er þversögn sem stenst ekki skoðun. Ástand heimsmála hefur ekki verið jafn eldfimt frá lokum kalda stríðsins þar sem stríð er háð í Evrópu og Mið-Austurlönd loga stafna á milli. Hernaðarlegt mikilvægi Íslands í Norður-Atlantshafi er slíkt að breiðist þessi átök út verðum við hluti af þeim hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Við stöndum því frammi fyrir tveimur öryggisáskorunum sem geta vegið að rótum lýðveldisins. Þær eru: Fjölþáttaógnir sem spanna bilið milli friðar og stríðs og felast í aðgerðum á borð við netárásir, falsfréttir og upplýsingaóreiðu til hermdar og hryðjuverka, skemmdarverka, launmorða eða drónaárása. Við Íslendingar höfum fengið að kenna á netárásum líkt og aðrar Evrópuþjóðir og þar hafa stjórnvöld tekið til varna þannig að staða okkar hvað þær varðar er nú betri en fyrir nokkrum árum þó margir innviðagagnagrunnar séu enn of opnir og illa varðir. Sérstaklega í heilsugeiranum. Falsfréttir og upplýsingaóreiðu má finna á samfélagsmiðlum í ríkum mæli og það eru ekki neinar skipulagðar varnir gegn þeim að finna hér á landi. Við höfum blessunarlega sloppið enn sem komið er við hermdar- og hryðjuverkaárásir, skemmdarverk, launmorð eða drónaárásir, en varnir okkar gegn þessum vágestum eru takmarkaðar ef frá er talin starfsemi sérsveitar Ríkislögreglustjóra sem er takmörkuð. Drónavarnir á Íslandi eru í lamasessi, þar vantar bæði tæknibúnað, sérhannaðar ratsjár og vopn til að granda drónum ef þeir ógna umhverfi sínu, t.d. með flugi yfir flugvöllum landsins. Það vill oft gleymast að allar varnir gegn fjölþáttaárásum er innanríkismál sérhverrar þjóðar og hvorki varnarsamningurinn við Bandaríkin eða aðild að NATO geta komið í stað þeirrar ábyrgðar sem stjórnvöld hafa við að tryggja öryggi borgaranna innan landamæra Íslands. Bein hernaðarógn er önnur öryggisáskorun sem við þurfum að geta tekist á við. Verstu sviðsmyndirnar eru eldflaugaárásir á hernaðarlega mikilvæg skotmörk eða óvænt og fyrirvaralaus árás á Ísland áður en liðsauki er kominn til landsins. Fyrri sviðsmyndin kallar á sérhæfðar loftvarnir og erlenda aðstoð. Loftvarnareldflaugar til að granda skotflaugum sem koma á margföldum hraða hljóðsins til árása eru bæði dýrar og af skornum skammti. Þessi ógn er af þeirri stærðargráðu að við þurfum aðstoð við að takast á við hana. Síðari sviðsmyndin kallar á varnir hernaðarlegra mikilvægra staða á Íslandi í nægjanlega langan tíma þar til liðsauki kemur ef þau varnarbandalög sem við tilheyrum halda. Ef íslensk stjórnvöld kalla á aðstoð frá bandamönnum þarf að taka ákvarðanir um að verða við þeirri beiðni, fjölda hermanna, búnað og hvaðan hann eigi að koma og flytja síðan til landsins. Þetta er ekki gert eins og hendi sé veifað og það getur tekið marga daga að koma honum til landsins. Íslendingar þurfa að geta varið þá hernaðarlega mikilvægu staði sem liðsaukinn þarf við komu til landsins í þann tíma sem það tekur. Til þess þurfum við innlenda varnarviðbúnað. Íslendingar eiga að taka virkan þátt í eigin vörnum. Vopnaða hermenn sem koma í stað öryggisvarða frá Securitas sem manna nú hlið öryggissvæðis Keflavíkurflugvallar. Varnir Íslands eiga ekki að vera innan ramma þeirrar hugsunar að „þetta reddast“. Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Öryggis- og varnarmál Mest lesið Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar