„Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sindri Sverrisson skrifar 15. september 2026 09:30 Aron Jóhannsson hefur mikið dálæti á Elliot Anderson og ekki að ástæðulausu. Samsett/Getty/Sýn Sport Aron Jóhannsson sparaði ekki hrósið í garð Elliot Anderson og sagði þennan 23 ára miðjumann Manchester City einn af fimm bestu miðjumönnum heims í dag, í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport.
City-menn þurfa nú að fóta sig að nýju eftir brotthvarf Pep Guardiola og ekki síður miðjumannsins Rodri, besta leikmanns HM í sumar, sem fór til Barcelona. Þeir unnu Manchester United á sunnudag, manni færri, og hafa þar með unnið alla sína leiki til þessa á tímabilinu. Brotthvarf Rodri var leyst með dýrum kaupum á Anderson og Enzo Fernandez en Aron er sannfærður um að kaupin á Anderson frá Nottingham Forest muni borga sig. „Elliot Anderson er einn af fimm bestu miðjumönnum í heimi í dag. Mér finnst hann gjörsamlega frábær,“ sagði Aron en brot úr Messunni má sjá hér að neðan. Klippa: Messan - Aron dásamaði Anderson Aron benti á að Anderson hefði skarað fram úr í ýmissi tölfræði sem leikmaður Forest síðasta vetur. „Vinna boltann á síðasta þriðjungi, sendingar undir pressu… í allri þessari „rusltölfræði“ var hann langefstur í deildinni. Hann er svo agressívur,“ sagði Aron og gekk svo langt að segja að Anderson væri betri en sjálfur Steven Gerrard: „Þetta eru kannski stór orð en hann er betri útgáfa af Gerrard. Hann er með þetta hjarta, tæklingarnar, „finesse“, góða löpp og svo er hann með þessa vél líka. Hleypur út um allt. Pep var kominn svolítið í að vera með tvær sexur en Elliot Anderson finnst mér alveg nógu góður til að vera ein sexa fyrir framan vörnina hjá City.“
Enski boltinn Manchester City Messan Tengdar fréttir „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Stuðningsmenn Tottenham eru farnir að grátbiðja liðið um að skora mark, eftir að hafa mistekist að skora í fyrstu fjórum umferðunum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Aron Jóhannsson kallar eftir meira hugrekki frá nýjum stjörnum liðsins. 14. september 2026 14:15 Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Aron Jóhannsson segist síður en svo sannfærður um að Bradley Barcola standi undir þeim 123 milljónum punda sem Liverpool samþykkti að greiða PSG fyrir þennan 24 ára gamla, franska kantmann. 14. september 2026 10:31 Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Sjá meira
„Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Stuðningsmenn Tottenham eru farnir að grátbiðja liðið um að skora mark, eftir að hafa mistekist að skora í fyrstu fjórum umferðunum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Aron Jóhannsson kallar eftir meira hugrekki frá nýjum stjörnum liðsins. 14. september 2026 14:15
Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Aron Jóhannsson segist síður en svo sannfærður um að Bradley Barcola standi undir þeim 123 milljónum punda sem Liverpool samþykkti að greiða PSG fyrir þennan 24 ára gamla, franska kantmann. 14. september 2026 10:31