Píeta samtökin í 10 ár Hildur Eir Bolladóttir skrifar 15. september 2026 13:03 Stofnun Píeta samtakanna fyrir tíu árum reyndist vendipunktur í sjálfsvígsforvörnum á Íslandi. Þá var samfélagið ávarpað í heild sinni með þeim skilaboðum að sjálfsvígshugsanir og sorgin vegna ástvinamissis í sjálfsvígi væri ekki feimnismál. Allt í einu voru til samtök vegna sjálfsvíga, rétt eins og Krabbameinsfélagið sem heldur utan um fræðslu og árvekni gegn krabbameini og Gigtarsamtökin sem fræða og hvetja til rannsókna á gigt. Með stofnun Píeta samtakanna var stigið stórt skref í átt að bættri lýðheilsu þar sem skilaboðin voru þessi “við erum hér af því að við vitum að sjálfsvígshugsanir fara ekki í manngreinarálit og hafa alltaf verið partur af því að vera manneskja frá morgni tímans.” Fram að stofnun samtakanna hafði leið þeirra sem upplifðu sjálfsvígshugsanir og vildu leita sér aðstoðar verið í gegnum bráðamóttöku spítalanna þangað sem fólk kemur með allskyns kvilla og starfsfólki er skylt að reyna að afgreiða eins hratt og vel og hugsast getur. Sá sem er með sjálfsvígshugsanir þarfa aðra nálgun, tíma og næði. Píeta samtökin eru á vaktinni allan sólarhringinn, þar starfar fagfólk í geðheilbrigðismálum og líka fólk sem hefur gengið í gegnum sjálfsvígshættu og unnið vel úr reynslu sinni og veitir öflugan jafningjastuðning. Píeta samtökin halda úti mörgum stuðningshópum fyrir þau sem syrgja ástvini og hópstjórar er fagfólk og reynsluboltar. Undirrituð er svo lánsöm að fá að halda utan um einn slíkan hóp á Akureyri og getur því vitnað um þá græðslu sem verður í slíku starfi og fegurð þótt sorgin sé sár. Það eru ekki mörg ár síðan fólk lækkaði róminn og jafnvel hvíslaði um sjálfsvíg og eftirlifandi ástvinir sátu ekki bara eftir með djúpan harm heldur flóttalega samferðarmenn sem forðuðust þá. Þannig vorum við sjálfum okkur verst því sjálfsvíg snerta hverja einustu manneskju með einhverjum hætti á lífsgöngunni, hvort sem er innan fjölskyldu eða í tengslum við vini, kunningja og samstarfsfólk. Píeta samtökin hafa opnað umræðuna enn frekar og rofið einsemd þeirra sem glíma við geðrænar áskoranir og sjálfsvígshugsanir og eins þau sem syrgja hina látnu. Á afmælisári vil ég fá að þakka brautryðjendum samtakanna ómetanlegt starf og öllum sem þar starfa af alúð, nærfærni og hlýju. Höfundur er hópstýra sogarhóps Píeta á Akureyri og prestur í Akureyrarkirkju. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Sjá meira
Stofnun Píeta samtakanna fyrir tíu árum reyndist vendipunktur í sjálfsvígsforvörnum á Íslandi. Þá var samfélagið ávarpað í heild sinni með þeim skilaboðum að sjálfsvígshugsanir og sorgin vegna ástvinamissis í sjálfsvígi væri ekki feimnismál. Allt í einu voru til samtök vegna sjálfsvíga, rétt eins og Krabbameinsfélagið sem heldur utan um fræðslu og árvekni gegn krabbameini og Gigtarsamtökin sem fræða og hvetja til rannsókna á gigt. Með stofnun Píeta samtakanna var stigið stórt skref í átt að bættri lýðheilsu þar sem skilaboðin voru þessi “við erum hér af því að við vitum að sjálfsvígshugsanir fara ekki í manngreinarálit og hafa alltaf verið partur af því að vera manneskja frá morgni tímans.” Fram að stofnun samtakanna hafði leið þeirra sem upplifðu sjálfsvígshugsanir og vildu leita sér aðstoðar verið í gegnum bráðamóttöku spítalanna þangað sem fólk kemur með allskyns kvilla og starfsfólki er skylt að reyna að afgreiða eins hratt og vel og hugsast getur. Sá sem er með sjálfsvígshugsanir þarfa aðra nálgun, tíma og næði. Píeta samtökin eru á vaktinni allan sólarhringinn, þar starfar fagfólk í geðheilbrigðismálum og líka fólk sem hefur gengið í gegnum sjálfsvígshættu og unnið vel úr reynslu sinni og veitir öflugan jafningjastuðning. Píeta samtökin halda úti mörgum stuðningshópum fyrir þau sem syrgja ástvini og hópstjórar er fagfólk og reynsluboltar. Undirrituð er svo lánsöm að fá að halda utan um einn slíkan hóp á Akureyri og getur því vitnað um þá græðslu sem verður í slíku starfi og fegurð þótt sorgin sé sár. Það eru ekki mörg ár síðan fólk lækkaði róminn og jafnvel hvíslaði um sjálfsvíg og eftirlifandi ástvinir sátu ekki bara eftir með djúpan harm heldur flóttalega samferðarmenn sem forðuðust þá. Þannig vorum við sjálfum okkur verst því sjálfsvíg snerta hverja einustu manneskju með einhverjum hætti á lífsgöngunni, hvort sem er innan fjölskyldu eða í tengslum við vini, kunningja og samstarfsfólk. Píeta samtökin hafa opnað umræðuna enn frekar og rofið einsemd þeirra sem glíma við geðrænar áskoranir og sjálfsvígshugsanir og eins þau sem syrgja hina látnu. Á afmælisári vil ég fá að þakka brautryðjendum samtakanna ómetanlegt starf og öllum sem þar starfa af alúð, nærfærni og hlýju. Höfundur er hópstýra sogarhóps Píeta á Akureyri og prestur í Akureyrarkirkju.
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar