Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Sindri Sverrisson skrifar 16. september 2026 07:36 Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar unnu tvöfalt á síðustu leiktíð og áttu það svo sannarlega skilið, þó að tveir leikmanna liðsins hafi verið rangt skráðir í bikarkeppninni. Kristianstad varð bikarmeistari í handbolta í Svíþjóð á síðustu leiktíð og er komið í undanúrslit keppninnar á þessari leiktíð en hefur allan tímann verið með tvo lykilleikmenn rangt skráða í liðið. „
Þetta er auðvitað óheppilegt. Við viljum auðvitað fylgja reglunum,“ segir Johan Jepson, formaður IFK Kristianstad, í samtali við Aftonbladet sem greindi fyrst frá málinu. Kristianstad hefur lengi haft sterka tengingu við Ísland og átti Einar Bragi Aðalsteinsson til að mynda sinn þátt í því að liðið varð bikarmeistari á síðustu leiktíð, sem og Svíþjóðarmeistari. Bikarmeistaratitilinn vann liðið hins vegar þrátt fyrir brot á reglum keppninnar, samkvæmt Aftonbladet. Þeir Albin Selin og Isaac Biel Nilsen voru nefnilega ekki skráðir í IFK Kristianstad heldur í venslaliðið IF Kristianstad sem spilar í næstefstu deild. Það virðast þeir raunar hafa verið allan sinn feril. Þetta veldur ekki vandræðum í deildarkeppni eða Evrópukeppni en frá og með síðustu leiktíð eru reglurnar hins vegar skýrar hvað þetta varðar í bikarkeppninni. Þar segir að leikmenn verði að vera skráðir nákvæmlega í það lið sem þeir spila fyrir og megi ekki spila fyrir annað lið í keppninni. Mótastjóri sænska handknattleikssambandsins staðfestir að þetta þýði að þeir Selin og Biel Nilsen hefðu ekki átt að fá að spila með IFK Kristianstad í bikarleikjunum á síðustu leiktíð, né á þessari leiktíð. Hins vegar hefðu mótherjar liðsins þurft að gera athugasemd innan við sólarhring eftir hvern leik til þess að eitthvað yrði gert í málinu. Kristianstad verður því ekki svipt bikarmeistaratitlinum og liðið er klárt í undanúrslitin í yfirstandandi keppni. Nú hafa leikmennirnir tveir auk þess verið rétt skráðir, í IFK Kristianstad. „Ég hafði ekki hugmynd um þetta. Eins og ég skildi það þá var þetta í lagi vegna samstarfssamningsins,“ sagði Jepson formaður félagsins og bætti við: „Auðvitað er þetta óheppilegt, við viljum að sjálfsögðu fylgja reglunum. Svo finnst mér að það hefði verið verra ef þeir hefðu verið skráðir eftir öllum kúnstarinnar reglum í „röngu“ félagi, segjum Alingsås. En nú voru þeir þó skráðir í „okkar“ félag í þessu samhengi og báðir eru uppaldir í IFK Kristianstad. Mér getur ekki fundist þetta vera neitt stórhneyksli þótt það sé auðvitað klaufalegt.“ Þrír Íslendingar bættust í leikmannahóp Kristianstad í sumar og eru allir rétt skráðir, en það eru hinir ungu Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason, og Ólafur Guðmundsson sem tók fram skóna að nýju og spilar fyrir sitt gamla félag.
Sænski handboltinn Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Fótbolti Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Körfubolti Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Fótbolti Fleiri fréttir Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sjá meira