Háskólar eiga að leggja áherslu á árangur, ekki fólk Aðalbjörn Jóhannsson skrifar 16. september 2026 10:32 Af hverju ættu háskólar sem eru fjármagnaðir með almannafé (það eru allir íslenskir háskólar) að endurspegla þjóðina og fólkið sem greiðir fyrir þá? Við þurfum ekki öll að langa í háskóla en ættu háskólar að langa í okkur öll? Í háskólunum má finna sífellt fjölbreyttari hópa sem fela í sér ungmenni sem komu beint úr framhaldsskóla, foreldra með börn á framfæri, fólk sem ekki hefur val um annað en að vinna með námi, einstaklinga með fötlun eða skerta starfsgetu, innflytjendur að fóta sig og þau sem ekki búa í skutlfjarlægð frá næsta háskóla. Ólíkt fólk með ólíkar þarfir. Ein leið til þess að vinda ofan af þessari þróun er eitt okkar allra besta hagræðingartól: Fjármögnunarlíkan íslenskra háskóla. Fyrir þau sem ekki hafa sökkt sér í þetta ótrúlega spennandi fyrirbæri þá er mikilvægt að vita að líkanið er árangurstengt: 42 krónur af hverjum 100 sem dreift er samkvæmt líkaninu miðast við loknar námseiningar og 18 krónur við loknar prófgráður. Samtals eru því 60 krónur af hverjum 100 tengdar tveimur mjög skýrum og mælanlegum afurðum kennslu: að stúdentar standist próf og að þeir útskrifist, vonandi sem fyrst, svona upp á fjárstreymið [1][2]. Auðvitað eru þetta að vissu leyti skiljanleg viðmið. Samfélagið á rétt á því að opinbert fé sé nýtt vel og eðlilegt að háskólar beri ábyrgð á árangri. Vandræðalegheitin liggja hinsvegar í því hvað kerfið gerir fjölbreytileikann óhagstæðan í rekstri. Úr verður falin stefna um að háskólarnir hagi þjónustu og námsframboði að þeim sem eiga auðveldast með að laga líf sitt að kröfum hefðbundins háskólanáms, nokkuð sem gengur þvert gegn þörfum samfélaganna sem þeim er ætlað að þjóna [3]. Hagræðingin felst ekki í krónum heldur fólki. Þegar góð markmið rekast á þröskulda fjárhagslegra hvata Fjármögnunarlíkanið gerir reyndar ráð fyrir samfélagslegu hlutverki háskóla. Fjórðungur þess tengist meðal annars fjarnámi, nýsköpun í kennslu, eflingu byggða og stuðningi við hópa á borð við innflytjendur og fatlað fólk [1][2]. Það er vissulega mikilvæg viðurkenning ríkisins á því að hlutverk háskóla sé víðara en að framleiða prófgráður en dregur ekki úr áhyggjum þeirra sem benda á að þessi hluti fjármögnunar gerir lítið til þess að vega upp á móti hvatakerfi sem leggur áherslu á árangur og þægilegt fólk [3]. Auðvitað þurfa þessi markmið ekkert alltaf að stangast á. Með góðum stuðningi geta fleiri lokið námi og fjárfesting í inngildingu (og fólki) getur þannig skilað bæði samfélagslegum og mælanlegum árangri. En það tekur tíma og kostar peninga að veita slíkan stuðning. Ef grunnfjármögnun er of veik, eins og staðan er í dag, þurfa háskólar að bera þann kostnað áður en árangurinn kemur fram. Áhættan liggur hjá stofnuninni, starfsfólkinu og stúdentinum á meðan fjárveitingin er ekki í höfn fyrr en einingum eða prófgráðu er skilað [1][2]. Við þetta kerfi er hætt við að skapist óhuggulegur hvati þess að forgangsraða hagkvæmari og einsleitari hóp stúdenta. Háskólarnir hætta að vera fyrir okkur öll. Reikningur sem safnar vöxtum Þrátt fyrir að þessi lýsing á kerfinu virki ómanneskjuleg (sem hún er) þá má samt ekki gleyma því að innan þess starfa, jú, bara manneskjur. Skortur á fjármögnun þýðir þess vegna alls ekki að kostnaðurinn hverfi. Honum er bara ýtt annað. Hann færist yfir á allt okkar magnaða og velviljaða starfsfólk háskólanna sem tekur að sér fleiri verkefni, kennir stærri hópum og reynir að veita einstaklingsmiðaðan stuðning innan þrengri ramma. Hann birtist í minni endurgjöf, grynnra námsmati, ópersónulegri kennslustundum, auknu álagi og skertum möguleikum þreyttra einstaklinga til þróunar kennslu. Þannig verður áhersla á árangur að andstæðu sinni, skorti á gæðum. Hann færist af sama þunga yfir á stúdenta sem þurfa sjálfir að brúa bilið með því að hlaupa hraðar, lengja námstíma eða auka vinnu meðfram námi til þess að koma til móts við þann aukna kostnað sem fellur á einstaklinginn. Þau sem hafa aðgang að fjárhagslegum stuðningi, sveigjanlegri vinnu eða sterku tengslaneti eiga þá betri möguleika á að halda áfram. Önnur hætta námi, ekki endilega vegna þess að þau skorti hæfni eða vilja, heldur vegna þess að aðstæður þeirra falla illa að stífu og strípuðu kerfi. Þannig verður áhersla á árangur að annarri andstæðu sinni, árangursleysi. Íslenskir stúdentar eru næstum því 40% líklegri til brottfalls úr háskólanámi en stúdentar í samanburðarlöndum okkar innan OECD [4]. Þegar háskólar eru fjármagnaðir eftir árangri án þess að nægilegt fjármagn fylgi þeim skilyrðum sem gera árangurinn mögulegan verður jöfnuður að aukaverkefni og fórnarkostnaðurinn er fólk. Fólk er ekki afurð Hér eru engin að fara fram á að við hættum að meta einingar eða útskriftir til fjár. Við þurfum hinsvegar að taka meðvitaða ákvörðun um hvernig markmið við viljum hvetja til og hver beri kostnaðinn af þeim samfélagslegu markmiðum sem við setjum háskólunum. Stuðningur við fjölbreytni ólíkra stúdenta má ekki vera verkefni sem er bara sinnt ef svigrúm finnst eftir að önnur rekstrargjöld hafa verið greidd. Það er ekkert svigrúm. Ef háskólar eiga að geta tekið við stúdentum sem raunverulega endurspegla samfélagið sem greiðir reikninginn þá verður ríkið að tryggja að þeir geti það. Árangur fylgir fólki, ekki öfugt, og fólk er ekki afurð. Höfundur er félagsvísindanemi og forseti Stúdentafélags Háskólans á Akureyri (SHA). Heimildir [1] Menningar, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið. (2023, 18. september). Árangurstengd fjármögnun háskóla. Stjórnarráð Íslands. https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2023/09/18/Arangurstengd-fjarmognun-haskola/ [2] Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið. (2023). Greinargerð um nýja fjármögnun háskóla. Samráðsgátt stjórnvalda. https://samradapi.island.is/api/Documents/5d0f3576-3a68-ee11-9bbe-005056bcce7e [3] Háskóli Íslands. (2023, 8. nóvember). Umsögn Háskóla Íslands um reglur um fjárframlög til háskóla. Samráðsgátt stjórnvalda. https://samradapi.island.is/api/Documents/3145462d-cd7f-ee11-9bbf-005056bcce7e [4] Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD). (2025). Education at a glance 2025: OECD indicators. OECD Publishing. https://doi.org/10.1787/1c0d9c79-en Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Háskólar Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun