„Þá mun ég reka mig sjálfur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 16. september 2026 14:50 Arnar Gunnlaugsson segir skýra sýn um að vinna keppnisleiki með þátttöku á stórmóti fyrir augum. Það byrjar á leik við Eistlandi eftir 10 daga. Getty/Ramsey Cardy Arnar Gunnlaugsson segist ekki hafa rými til þess að fara í miklar tilraunir með unga leikmenn í varnarlínu Íslands í komandi keppnisleikjum. Fámenn varnarlína hefur verið hausverkur síðustu misseri.
Aðeins þrír miðverðir eru í landsliðshópi Íslands fyrir komandi verkefni í Þjóðadeildinni. Þar spilar Ísland við Eistland (tvisvar) auk leikja við Lúxemborg og Búlgaríu. Þeir Aron Einar Gunnarsson (37 ára), Hörður Björgvin Magnússon (33 ára) og Daníel Leó Grétarsson (30 ára) eru miðverðir Íslands í verkefninu og þá getur Guðlaugur Victor Pálsson (35 ára) einnig leyst stöðuna og vonir standa til um að Stefán Teitur Þórðarson (27 ára) geti það einnig. Arnar var spurður að því í beinni útsendingu á Vísi eftir blaðamannafund dagsins hvar miðverðir Íslands væru. „Við erum að fá tvo til þrjá helvíti öfluga upp í yngri landsliðum en þeir eru mögulega ekki tilbúnir fyrr en eftir tvö til þrjú ár. Ungur kantmaður getur fengið tækifæri og gert mistök, en ef ungir miðverðir eða ungur markvörður gerir mistök þá kostar það menn meira,“ segir Arnar sem treystir á gömlu mennina. „Það eru tvö, þrjú eða fjögur ár eftir hjá þessum gömlu hundum. En þetta er klárlega mál sem við þurfum að takast á við og þurfum að hugsa út fyrir boxið. Í minningunni með gullaldarliðið var Kári Árna miðjumaður þangað til hann var 27 ára en myndar svo eitt okkar sterkasta miðvarðapar með Ragga (Ragnari Sigurðssyni),“ segir Arnar. Klippa: Arnar í spjalli eftir blaðamannafund Stefán Teitur geti mögulega tekið svipað skref og Kári Árnason gerði á sínum tíma og tekið sér stöðu í miðverðinum. Hann hafi fengið of lítinn séns þar í öðrum landsleik Íslands undir stjórn Arnars gegn Kósóvó í mars 2025. „Það er svona meiningin eins og með Stefán Teit, að gefa honum svið til að vaxa. En svo er slæma hliðin á þessu með landsliðið ef þú gerir ein mistök. Hann spilaði miðvörð í öðrum leiknum mínum við Kósóvó í Murcia,“ „Það var ekki góður leikur, hvorki hjá honum né liðinu. En er ekki ósanngjarnt að gefa honum einn hálfleik, með allar þessar taktísku pælingar sem voru í gangi þá, og segja að hann sé lélegur eftir þann leik?“ „Í staðinn er hægt að reyna að þróa þetta aðeins með honum, hann kom inn í hybrid fimm manna vörn gegn Japan, og hann var frábær í þeim leik. Þetta er eitthvað sem við getum skoðað í þessum glugga og gefum þessu meiri séns,“ segir Arnar. Rekur þá sjálfan sig Arnar nefndi á blaðamannafundinum að það væru tækifæri í því hversu fámennt Ísland er í miðvarðarstöðunni, og vísaði þá líklega til Stefáns Teits. Arnar var þá spurður að því hvort fælust ekki einnig tækifæri í því að gefa yngri miðvörðum sæti í hópnum, þó þeir séu ekki endilega reiðubúnir, blóðga þá og hugsa til framtíðar í stað þess að hafa hálffertuga menn þarna fram eftir öllu? „Vináttuleikir og keppnisleikir eru allt annað. Ég lít á það þannig að ef við vinnum ekki þessa keppnisleiki þá hef ég ekkert að gera í þessu starfi. Þá mun ég reka mig sjálfur,“ segir Arnar sem hefur aðeins unnið tvo keppnisleiki sem þjálfari liðsins, báða gegn Aserbaídsjan, auk eins vináttuleiks við Skotland. „Í vináttuleikjum getum við prófað allt og ekkert og allt þar á milli. En keppnisleikir, við erum þar til að vinna. Ég held það sé hættulegur leikur að gefa leikmönnum tækifæri þar, þó ég skilji þessar pælingar,“ segir Arnar og bætir við: „Hvenær er framtíðin? Okkar framtíð er bara núna, við erum að reyna að komast inn á stórmót.“ Fyrsti leikur Íslands í komandi verkefni er gegn Eistlandi á Laugardalsvelli 26. september. Ísland mætir Lúxemborg ytra 29. september, Búlgaríu hér heima þann 3. október og svo Eistlandi ytra 6. október. Allir fjórir leikirnir verða í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta EM 2028 í fótbolta Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Sjá meira