Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Freyja Þórisdóttir skrifar 20. september 2026 17:44 Gríðarstórir hátalarar dreifðu tónlistinni yfir mannhafið sem safnast hafði saman á tónleikunum. Vísir/Viktor Freyr Hljómsveitin Quarashi tróð upp fyrir smekkfullri Laugardalshöll á dögunum í tilefni af þrjátíu ára starfsafmæli en þar komu einnig fram margir af þekktustu tónlistarmönnum landsins. Sölvi Blöndal, einn forsprakki sveitarinnar, hafði í viðtali lofað því að þetta yrðu stærstu tónleikar þeirra til þessa.
Allir stærstu slagarar sveitarinnar voru teknir á tónleikunum en meðal þeirra má nefna lagið Stick 'Em up af plötunni Jinx sem kom út árið 2002. Þá voru tónleikagestir á öllum aldri og var áberandi mikið af ungu fólki sem mætti og skemmti sér á tónleikunum. Sölvi hafði orð á því fyrir tónleikana að hann væri mjög þakklátur fyrir það að þetta einhvern veginn endurnýjast kynslóð eftir kynslóð. „Maður getur varla beðið um meira og það sem mér finnst eiginlega skemmtilegast við þetta er að sjá hvernig þessi tónlist hefur lifað,“ sagði hann meðal annars. Meðlimir hljómsveitarinnar gáfu ekkert eftir og var öllu tjaldað til á stórafmælistónleikunum en það er tónleikagestanna að meta hvort þeir hafi staðið við þetta loforð sitt frá því fyrr í vikunni: „Við sprengjum þetta hús í loft upp.“ Ljósmyndari Vísis var að sjálfsögðu á staðnum og fangaði stemninguna á filmu en vel valdar myndir frá kvöldinu er að finna hér fyrir neðan. Fjölmargir gestir sem komu að sögu sveitarinnar á ýmsum tímum tróðu upp í höllinni samhliða strákunum en meðal þeirra voru meðlimir Vintage Caravan, Gísli Pálmi, Mugison og Emmsjé Gauti.Vísir/Viktor Freyr Gestir á öllum aldri hrópuðu sig hása á tónleikunum.Vísir/Viktor Freyr Allir fyrrum meginliðsmenn sveitarinnar tóku þátt í endurkomunni þegar Quarashi steig aftur á svið á Lopapeysunni síðasta sumar. Þar á meðal voru Steinar Fjeldsted, Höskuldur Ólafsson, Sölvi Blöndal, Egill „Tiny“ Thorarensen, Ómar „Swarez“ Hauksson og DJ Gísli Galdur.Vísir/Viktor Freyr Það var standandi partí í höllinni en undirrituð heyrði hátt og snjallt í tónleikunum yfir á Suðurlandsbraut.Vísir/Viktor Freyr Það var engu til sparað og allt skilið eftir á sviðinu enda um tímamótatónleika að ræða.Vísir/Viktor Freyr Ljósastýringunni í Laugardalshöllinni var fagmannlega stýrt og setti hver litur tóninn fyrir það lag sem á eftir kom.Vísir/Viktor Freyr Strákarnir í Quarashi seldu úr Laugardalshöllina árið 2002 og var það í fyrsta sinn sem íslenskt band gat státað af því að halda uppselda tónleika í húsinu.Vísir/Viktor Freyr
Tónleikar á Íslandi Tónlist Reykjavík Samkvæmislífið Tengdar fréttir Quarashi hyggst „Do it again“ Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi. 24. júní 2026 15:56 Quarashi aftur á svið Íslenska hljómsveitin Quarashi stígur á svið á tónlistarhátíðinni Lopapeysan sem fer fram fyrstu helgina í júlí á Akranesi. Sveitin starfaði í átta ár og lagði upp laupana árið 2004. 18. júní 2025 11:15 Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Keppast um að minnast Stewarts Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Myndaveisla: „Við sprengjum þetta hús í loft upp“ Sheeran bað aðdáendur afsökunar „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Sjá meira
Quarashi hyggst „Do it again“ Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi. 24. júní 2026 15:56
Quarashi aftur á svið Íslenska hljómsveitin Quarashi stígur á svið á tónlistarhátíðinni Lopapeysan sem fer fram fyrstu helgina í júlí á Akranesi. Sveitin starfaði í átta ár og lagði upp laupana árið 2004. 18. júní 2025 11:15