Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Sindri Sverrisson skrifar 23. september 2026 15:47 Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í Bayern urðu að sætta sig við jafntefli gegn Manchester City í gær. Samsett/Getty/Disney+ Leikmenn og forráðamenn Bayern München voru afar ósáttir eftir að mark Manchester City gegn liðinu fékk að standa í gær, þrátt fyrir rjúkandi blátt blys væri á vellinum, í slag í Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna.
Markið skoraði Beth Mead undir lok fyrri hálfleiks og minnkaði muninn í 2-1 en leiknum lauk með 2-2 jafntefli. Eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan var blysið nokkuð nálægt svæðinu þar sem City sótti fram hægri kantinn, áður en fyrirgjöf barst svo á Mead sem skoraði. Glódís og aðrir leikmenn Bayern mótmæltu því að markið fengi að standa en dómarinn lét sér fátt um finnast, tók upp blysið og fjarlægði það af vellinum. Í frétt The Athletic er haft eftir Bianca Rech, yfirmanni fótbolta kvenna hjá Bayern, að stöðva hefði átt leikinn. „Blysið var búið að vera á vellinum í nokkrar sekúndur. Leikmennirnir höfðu tekið eftir því og gætu hafa slökkt á sér á þessu augnabliki, því það hefði átt að stoppa leikinn,“ sagði Rech. Samkvæmt reglum UEFA er leikmönnum og dómurum skylt að færa sig frá blysum sem kastað er inn á völlinn og getur dómari þurft að stöðva leik á meðan þau klárast. Í lögum fótboltans, frá IFAB, er enn skýrara að dómarar eigi að stöðva leik þegar í stað ef blys er talið hafa áhrif á leikinn með því að það lendi nálægt leikmönnum í nálægð við boltann, eða ef reykurinn truflar útsýni leikmanna eða dómara.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Barcelona – Aston Villa | Ósigraðir Villa-menn á Nývangi Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Sjá meira