Fótbolti

Daníel átti þátt í dramatísku sigur­marki

Aron Guðmundsson skrifar
Daníel Freyr öflugur í kvöld
Daníel Freyr öflugur í kvöld Mynd:Lyngby

Daníel Freyr Kristjánsson átti stóran þátt í því að Íslendingaliði Lyngby tókst á dramatískan hátt að tryggja sér sæti í næstu umferð danska bikarsins í fótbolta í kvöld. 

Daníel Freyr var einn af þremur Íslendingum sem byrjuðu leikinn fyrir Lyngby en auk hans voru Davíð Helgi Aronsson og Ísak Snær Þorvaldsson í byrjunarliðinu.

Daníel átti stoðsendinguna í sigurmarki leiksins sem kom í uppbótartíma venjulegs leiktíma. Það var hinn dansk-íslenski William Steindorsson sem skoraði markið og tryggði þar með Lyngby sæti í átta liða úrslitum danska bikarsins. Afi Williams er íslenskur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×