Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Lovísa Arnardóttir skrifar 24. september 2026 21:00 Gunnar Dofri segir aðkomuna stundum mjög erfiðar. Myndin til hægri er frá grenndarstöð við Ferjubakka sem var lokað 2022 vegna slæmrar umgengni. Vísir/Ívar Fannar og Reykjavíkurborg Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir það til skoðunar að fara í mál við fólk sem skilur sorp eftir við grenndargáma sem ekki á að fleygja þar. Það varði við lög að skilja rusl eftir á víðavangi og hæsta sekt geti numið einni milljón króna.
Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær að Reykjavíkurborg greiði Sorpu í ár 78 milljónir vegna sorps sem er skilið eftir við grenndarstöðvar og þarf að þrífa. Kópavogur greiðir sextán milljónir. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins greiða hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu fyrir að hreinsa við sínar grenndarstöðvar. „Þetta er blessunarlega ekki mikið, og ekki algengt, en þetta er dýrt,“ segir Gunnar Dofri en rætt var við hann í Bítinu á Bylgjunni í morgun um málið. Hann segir uppistöðuna í kostnaðinum teymið sem þarf að sækja ruslið og það keyri höfuðborgarsvæðið á enda til að sækja það. Vegalengdir séu langar og bensínið dýrt. „Mjög lítill hluti af þessu er ruslið sjálft sem við erum að henda,“ segir hann og að kostnaðurinn liggi þannig frekar í utanumhaldinu. „Það eru þessir örfáu sem eru að skemma fyrir hinum,“ segir hann og bendir á að á Akranesi hafi verið brugðist þannig við að öllum grenndarstöðvum hafi verið lokað vegna sóðaskapar. Gunnar Dofri segir þetta hafa gerst einu sinni í hans tíð að það hafi þurft að loka grenndarstöð vegna sóðaskapar. Sú var við Ferjubakka og var lokað árið 2022. Gunnar Dofri segir þetta viðvarandi verkefni. Það sé ákveðið teymi sem sæki það sem er skilið eftir við stöðvarnar og ekki eigi heima þar, og svo annað sem sæki það sem fer í gámana. Búið að greiða fyrir förgun með sköttum Af hverju fólk skilur ruslið eftir segir Gunnar Dofri engar haldbærar skýringar á og bendir á að í tilviki stórra raftækja þá kosti ekki að skilja þau eftir í Sorpu. Fólk sé mögulega hrætt við gjaldtöku en það sé aðeins rukkað í tíu til tólf prósent tilvika og stærstan hluta förgunar sé búið að greiða fyrir með sköttum. Hann segist helst þurfa að greiða fyrir framkvæmdarusl og það sé ekki innifalið í sköttunum. „Við horfum ekki bara í þetta og hugsum ráðum fleiri,“ segir hann og að í upphafi síðasta árs hafi verið ákveðið að koma upp öryggismyndavélum við allar grenndarstöðvarnar. Þær séu núna komnar upp og það geri það að verkum að þau geti stýrt teyminu með skilvirkari hætti. Þau sjái hvort það sé rusl og þurfi því ekki að senda teymið á rúntinn til að athuga með það. Ólöglegt að skilja ruslið eftir Hann segir að í upptökunum megi oft sjá hver sé að henda ruslinu og Sorpa velti því nú fyrir sér hvernig þau geti náð til þessa fólks og mögulega farið í mál við það. „Að skilja rusl eftir á víðavangi, sem þetta sannarlega er í skilningi laganna, er ólöglegt og þetta varðar sektum,“ segir hann og að hæstu sektir geti varðað milljónum. Hann segir myndavélarnar strax hafa fælingarmátt og Sorpa hafi séð minna rusl eftir að þær voru settar upp.
Sorphirða Reykjavík Kópavogur Bítið Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira