„Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 24. september 2026 21:02 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóra SA mættust í Pallborðinu. Formaður VR telur þær aðgerðir sem ríkisstjórnin boðar í þeim tilgangi að ná hallaleysi verðbólguhvetjandi og segir það hina raunverulegu skilgreiningu á að pissa í skóinn sinn. Hún segir meiri líkur en minni á að samningum verði sagt upp fyrir þann 8. október.
Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mættust í Pallborðinu á Vísi í dag. Fresturinn til að segja upp kjarasamningunum vegna forsendubrests rennur út eftir sléttar tvær vikur og staðan afar viðkvæm. Í Pallborðinu sögðust þau sammála um stóra markmiðið, að ná verðbólgunni niður, en ósammála um aðferðafræðina. Bjarni sagði að það væri óráð að setja samninga í uppnám. Samtökin vilji að kjarasamningar haldi en fyrirtækin geti ekki tekið á sig auknar launahækkanir. Hann sagði að laun hefðu hækkað umfram það sem samningurinn kvað á um og kostnaður atvinnurekenda meiri en lagt var upp með. „En hins vegar það sem átti að standa undir því, það hefur ekki skilað sér. Hér er að mælast samdráttur í framleiðni. Hagvöxtur hefur verið lítill sem enginn og þess vegna er þetta mjög viðkvæm og erfið staða. Það eru ekki bara vonbrigði fyrir launþegahreyfinguna að verðbólga sé há og vextir háir heldur er þetta háa vaxtastig gríðarlega íþyngjandi fyrir allan atvinnurekstur.“ Halla sagði að við gerð kjarasamninganna árið 2022 hefði launafólk tekið mikla áhættu með því að undirgangast lágar launahækkanir í trausti þess að fyrirtæki myndu halda aftur af verðhækkunum og í trausti þess að ríki og sveitarfélög myndu halda aftur af gjaldskrárhækkunum. „Síðan stóðu vonir og væntingar til þess, hversu skynsamlegt sem það kann að hafa verið, að þetta samanlagt myndi leiða til þess að verðbólga gengi niður og stýrivextir myndu fylgja í kjölfarið. Verðbólgan var þá þegar byrjuð að ganga niður og hún hélt vissulega áfram að ganga niður.“ Launafólk setið með Svarta Pétur Það hafi svo ekki raungerst. Veturinn 2024 til 2025 hafi heimilin misst fasta vexti og greiðslubyrgði launafólks þyngst. „Og það sem hefur verið að rakna upp svona fyrir framan augun á manni undanfarið er að það taldi sig enginn vera eitthvað sérstaklega bundinn af þessari vegferð. Ríkið taldi sig ekki bundið af henni, sveitarfélögin töldu sig ekki bundin af henni og fyrirtækin töldu sig ekkert endilega bundin af henni. Eftir situr launafólk með svarta pétur og við höfum verið að kalla eftir viðurkenningu á þeirri stöðu og leiðréttingum gagnvart því.“ Halla Gunnarsdóttir segir launahækkanir ekki verðbólguhvetjandi.vísir/anton Aðspurð hvort krafa um launahækkanir væru ekki olía á verðbólgueldinn sagðist Halla ekki taka undir það. „Launahækkanir valda ekki verðbólgu, verðhækkanir valda verðbólgu. Og vissulega geta komið upp aðstæður ef öllum launahækkunum er velt út í verðlag sem þær geta gert það en í grunninn er þetta verðþrýstingur að utan. Það eru húsnæðismálin, það eru þessir þættir sem eru að valda verðbólgu.“ Það gangi ekki að launafólk sé látið bera ábyrgð á verðbólgunni. Ákvarðanir ríkisstjórnarinnar ekki hjálpað Bjarni sagði óumdeilt að ákveðnar ákvarðanir sem teknar hafa verið í tengslum við fjárlög þessa árs hafi áhrif á verðbólgu og nefnir hann þar gjaldskrárhækkanir. Þá hafi stríðsátök einnig áhrif. Það sé einkennandi fyrir íslenska hagkerfið að verðbólga og verðbólguvæntingar séu að jafnaði hærri en annars staðar og sagði hann ítrekaðar launahækkanir nefndar sem orsakavaldur. „Það kostar heimilin og fyrirtækin allt of mikið að taka lán til lengri tíma vegna þess að það hefur enginn trú á því að við náum almennilega tökum á þessu ef við förum ekki í rót vandans.“ Halla var nokkuð harðorð í garð Seðlabankans. Sagði hún hávaxtastefnu bankans kreista sömu hópana í þjóðfélaginu. „Hvernig komum við okkur út úr þessum skrýtna hugmyndafræðilega heimi að ef verðbólga fer upp á Íslandi þá sé eina viðbragðið að kreista fólk með stýrivöxtum sem gagnast sumum hópum en koma mjög illa niður á öðrum hópum?“ Halla sagði stöðu fyrirtækjanna fína og að meðaltali hefðu þau það gott. Það þyrfti ekki annað en að skoða ársreikninga þeirra til að sjá stöðuna. Bjarni vísaði þessu á bug og sagði að það þyrfti ekki annað en að leita í Kauphöllina til að sjá stöðu fyrirtækja og ávöxtun þeirra. „Sjá menn ekki vandann sem við erum að glíma við? Við erum að horfa upp á vaxandi atvinnuleysi og miklar þrengingar. Ég hefði aldrei trúað því að við myndum búa við þetta hátt vaxtastig í svona langan tíma en það er niðurstaðan.“ Verði að finna þolanlega lendingu Þau voru sammála um að fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefði verið erfið sending inn í stöðuna á vinnumarkaði. „Það boðar ekki gott þegar stjórnvöld eru að koma með tugmilljarða skattahækkanir inn í þessa stöðu eins og fjárlagafrumvarpið boðar. Þetta er bara alls ekki nógu góð staða og það er okkar sameiginlega verkefni að vinna það nú út úr þessu að við fáum lendingu sem er þolanleg,“ sagði Bjarni. „Auðvitað þarf ríkisstjórnin að sýna pólitíska leiðtogahæfni og stundum getur maður þurft að yfirgefa einhver svona prinsipp sem þú setur þér á einhverjum tímapunkti ef aðstæður hafa breyst. Og ég tel að þessi mikla fixasjón á hallalaus fjárlög sé dæmi um slíkt prinsipp. Ég held það sé miklu mikilvægara að ná tökum á efnahagsumhverfinu og vera ekki með verðbólguhvetjandi hækkanir í því eina skyni að reyna að ná hallaleysi, því að það er algjörlega skilgreiningin á því að pissa í skóinn,“ sagði Halla. Horfa má á Pallborðið í heild sinni í spilaranum ofar í fréttinni.
Pallborðið Vinnumarkaður Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira