Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar 27. september 2026 08:01 Í deilum um alvarleg mál er auðvelt að velja niðurstöðu fyrst og leita síðan að því sem styður hana. Betri leið er að byrja á einfaldri spurningu: Hvað liggur raunverulega fyrir? Í máli séra Friðriks Friðrikssonar hef ég nú aðgang að skýrslu Bjarna Karlssonar og Sigrúnar Júlíusdóttur fyrir KFUM og KFUK. Hún gerir mér kleift að greina á milli þess sem sagt var síðar í opinberri umræðu og þess sem heimildrnar sjálfar virðist hafa verið. Heimildir skýrsluhöfunda eru „rýrar“, eins og þau segja, og alls ekki eru þau sérfræðingar í rannsóknum sem þessum. Eitt tilvik frá fyrstu hendi Skýrslan segir frá einum eftirlifandi manni sem lýsti eigin reynslu frá því hann var tíu eða ellefu ára. Samkvæmt skýrslunni sagði hann séra Friðrik hafa athugað hvort eistu hans væru gengin niður og þá snert hann innan klæða og tengdist það knattspyrnu m.a. hvort hann ætti að vera í marki sem þá hefði gert hlífðarbúnað æskilegan. Þetta er frásögn frá fyrstu hendi og hana ber að taka trúanlega. Á þessum tíma var það kannað af skóla læknum eða hjúkrunarfræðingum hvort eistu væru gengin niður Þess má geta að Sr. Friðrik stundaði nám í læknisfræði sinn fyrsta vetur í Kaupmannahöfn. En trúanleg frásögn er ekki undanþegin athugun. Spyrja þarf um tímasetningu, samhengi, nákvæmni minnis, aðstæður og aðrar mögulegar heimildir. Því lengra sem liðið er frá atburði, þeim mun erfiðara verður að sannreyna slík atriði. Sr Friðrik lést 1961 þ.e. fyrir 65 árum síðan. Í viðtali Bjarna við manninn, sem greinarhöfundur hefur öruggar heimildir um, koma nánar fram atriði sem mikilvægt er að hafa í huga, þ.e. að maðurinn hafi svarað neitandi spurningum Bjarna um hvort honum hefði þótt atvikið óþægilegt eða honum liðið illa vegna þess síðar. Loks kemur þar fram að maðurinn hafi lýst því að hann hefði gengið stoltur frá fundinum með séra Friðrik. Þessi lýsing er mjög mikilvæg og skiptir upplifun mannsins höfuðmáli við mat á því hvaða ályktanir er sanngjarnt að draga af atvikinu. Óbeinar frásagnir Aðrar heimildir skýrslunnar eru að verulegu leyti óbeinar. Þar er meðal annars frásögn ekkju af því sem látinn eiginmaður hennar hafði sagt, frásögn dóttur af því sem látinn faðir hennar hafði sagt fjölskyldunni og upplýsingar sem komu í gegnum samskiptaráðgjafa. Slíkar heimildir geta verið mikilvægar, en sagnfræðilega og lagalega eru þær ekki jafngildar beinum framburði manns sem sjálfur upplifði atvik. Höfundar skýrslunnar virðast sjálfir hafa gert sér grein fyrir þessu. Í niðurstöðukaflanum segja þau rannsóknarefnið „rýrt“ og taka fram að einungis ein af fimm heimildum feli í sér beina lýsingu frá fyrstu hendi. Hver er „Kristinn“? Stór hluti upphafs málsins tengdist frásögn ónafngreinds heimildarmanns í bók Guðmundar Magnússonar, manns sem nefndur er „Kristinn“. Samkvæmt skýrslunni bað Bjarni Guðmund að koma þeim skilaboðum til mannsins að þau Bjarni og Sigrún vildu ræða við hann. Hann hafði ekki samband. Það sannar ekki að „Kristinn“ sé ekki til og það sannar ekki að frásögn hans sé röng. En það þýðir að þeir sem voru fengnir til að kanna málið fyrir KFUM og KFUK gátu ekki rætt beint við þann mann sem frásögnin snerist um. Þau gátu ekki spurt hann nánar um atvik, tímasetningar, samhengi eða möguleg vitni. Sagnfræðileg nákvæmni Björn Jón Bragason, sagnfræðingur og lögfræðingur, hefur bent á að óljóst sé hvenær sum meint atvik eigi að hafa átt sér stað og að slíkt skipti máli, meðal annars vegna þess að séra Friðrik var orðinn nánast blindur á síðari hluta ævinnar. Björn telur að ekki verði dregnar öruggar ályktanir af fyrirliggjandi frásögnum með aðferðum sagnfræðinnar. Hér þarf líka að hlusta á frásagnir sem ganga ekki í sömu átt. Rúnar Guðbjartsson lýsti opinberlega eigin bernskuminningum af nálægð og hlýju séra Friðriks á jákvæðan hátt. Slík frásögn sannar ekki sakleysi gagnvart öðrum ásökunum, en hún er hluti af heildarmyndinni og minnir á að hegðun eða samskipti geta verið upplifuð og túlkuð með ólíkum hætti. Frá heimild til dóms Sagnfræðingur má að sjálfsögðu birta óstaðfestar heimildir með viðeigandi fyrirvörum. Ævisaga er ekki sakamál. En þá skiptir orðalagið öllu. Það er eitt að segja að frásögn hafi komið fram. Annað að segja að atvik sé líklegra en ekki. Og enn annað að lýsa sekt „hafinni yfir skynsamlegan vafa“. Skýrslan sjálf endar á „meiri líkur en minni“. Þess vegna er réttmætt að spyrja hvernig opinber niðurstaða varð síðar miklu sterkari en þessi eiginlega niðurstaða skýrsluhöfundanna. Það er ekki krafa um að þagga niður í frásögnum. Það er krafa um að virða muninn á heimild, mati og sönnun. Og gætum að sannleikanum. Þetta er önnur grein mín um aðförina að æru Sr. Friðriks Friðrikssonar, næsta heitir “KFUM og KFUM – rannsókn eða krísustjórnun”. Höfundur er einn af drengjum Sr Friðriks Friðrikssonar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun