Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. september 2026 08:03 Magdalena Andersson segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun. EPA/ANDERS WIKLUND Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun til vinstri eftir að Vinstriflokkurinn á sænska þinginu hafnaði tillögu Jafnaðarmanna að þingforseta. Þess í stað ákvað flokkurinn að styðja tillögu hægriflokka að þingforseta.
Í umfjöllun sænska ríkisútvarpsins kemur fram að Andersson hafi boðað til blaðamannafundar vegna málsins í morgun. Hún segir viðræður við vinstriflokkana síðustu tíu daga um stjórnarmyndun ekki hafa skilað neinu. Flokkurinn líti svo á að Vinstriflokkurinn vilji styðja ríkisstjórnarmyndun til hægri með stuðningi sínum við tillögu flokkanna að þingforseta. Þing er sett í dag í landinu í fyrsta sinn síðan kosningar fóru þar fram. Moderatarna, hægri flokkurinn í Svíþjóð, hefur tilnefnt Andreas Norlén og munu flokkar frá miðju og til hægri styðja tillöguna auk Vinstriflokksins. Fram kemur að Jafnaðarmenn hafi ekki útnefnt neinn hingað til. Andersson segir á blaðamannafundi í morgun að hún hafi verið látin vita af ákvörðun Vinstriflokksins í gær, hún hefði ekki skilað stjórnarmyndunarumboðinu annars. Hún hafnar því að ákvörðunin sé einungis til þess fallin að mynda þrýsting á Vinstriflokkinn um að ganga aftur til samningaviðræðna. Þá ræðir sænska ríkisútvarpið við Nooshi Dadgostar formann Vinstriflokksins. Hún segir að yfirlýsing Andersson um málið sé undarleg, flokkurinn hafi ekki litið á útnefningu þingforseta sem pólitískt mál. Flokkurinn hafi viljað útnefna manneskju sem hefði reynslu og væri hæf í starfið, en Norlén hefur verið þingforseti frá árinu 2018.
Svíþjóð Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Sjá meira