Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar 28. september 2026 12:00 Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum, langt í frá. En þegar ég hlusta á umræðuna í kennaranáminu og samfélaginu í heild um skóla án aðgreiningar er tónninn oft sá sami. „Allt er ómögulegt“, „of fáir fá stuðning“, „kerfið er brotið“. Ég er alls ekki að segja að vandamálið sé ekki raunverulegt og gagnrýnin eigi ekki rétt á sér, en mér finnst margir gleyma hvaðan við komum. Oft á tíðum hljómar það eins og ekkert hafi breyst. Það er ekki mín sýn. Afi minn fæddist í Stykkishólmi árið 1946. Hann ólst upp í gríðarlegri fátækt og flutti til Reykjavíkur sextán ára gamall þar sem hann vann langa daga einungis til þess að lifa af. Fyrir hann var skólaganga aldrei sjálfsagður hlutur þar sem stéttarstaða hans og búseta útilokuðu hann algjörlega frá námstækifærum sem jafnaldrar hans í Reykjavík höfðu. Þetta er ekki sama tegund útilokunar og oftast er rætt um þegar talað er um skóla án aðgreiningar. Útilokun hans snerist ekki um fötlun eða önnur frávik heldur um það hvar hann fæddist og hvað fjölskyldan hans átti. En það sem stendur eftir er að við höfum áður hugsað upp á nýtt hverjir teljast eiga heima í skólanum og gert það, þótt það hafi gengið hægt fyrir sig. Jón Torfi Jónasson prófessor skrifaði frábæra grein, „Skóli fyrir alla?“, þar sem þessi þróun er tekin skref fyrir skref. Þar kemur fram að ekki er langt síðan að börn með frávik voru kölluð afbrigðileg og flokkuð eftir því hversu langt þau voru frá því að vera „eðlileg“. Í dag hljómar þetta ómannúðlegt. Ísland hefur þróast úr hjálparbekkjum og sérskólum, sem voru fyrst og fremst hugsaðir sem einhvers konar skyndilausn, yfir í að sett voru lög og reglugerðir sem kröfðust þess að skólar tækju á móti öllum börnum, og loks í það sem við köllum í dag skóla án aðgreiningar eða inngildingu. Allt þetta gerðist ekki á einni nóttu. Ef við horfum alltaf bara á neikvæðu hliðarnar og það sem vantar, eins og fleiri sérfræðinga eða meira fjármagn, getum við misst sjónar á því að við erum þjóð sem hefur margoft sýnt að hún getur breytt því hverjir teljast eiga heima í skólastofunni. Það er ekki sjálfgefið. Kannski þurfum við minna vonleysi og meiri trú á verkefnið. Ég myndi aldrei segja að við ættum að hætta að gagnrýna kerfið eða að núverandi staða sé ásættanleg og við ættum öll að vera sátt. En það er mikill munur á gagnrýni sem breytir einhverju og orðræðu sem einfaldlega þreytir fólk. Ef saga skólakerfisins síðustu áratugi hefur kennt okkur eitthvað, þá er það að hlutirnir breytast þegar fólk gefst ekki upp og heldur áfram að ýta á breytingar. Afi minn átti aldrei kost á að ganga menntaveginn, en hér er ég, barnabarnið hans, að verða kennari. Því spyr ég þig, var Róm byggð á einum degi? Höfundur er meistaranemi í kennaranámi við Háskóla Íslands og frístundaráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar