Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar 3. október 2026 15:31 Ég hlustaði á þáttinn Kveik sem var fluttur landsmönnum fyrr í vikunni. Ég er enn að vona að raunveruleikinn sé ekki jafn slæmur og lýst var í frásögninni. Við sem hlustuðum og erum ekki starfsmenn á stofnunum þar sem gömlu fólki er komið fyrir höfum fæst kunnáttu til að tjá okkur um það starf sem þar er unnið. Virkni lyfja er margslungin og getur raunar staðið í fagmönnum með fjölda ára nám í fræðum lækninga að skilja virknina til fulls. Lyf eru vægast sagt vandmeðfarin. Þegar ég fyrir mörgum árum var viðriðin starf á stofnunum samfélagsins sá ég því miður dæmi þess að frjálslega væri farið með áhrifamikil lyf. Ég gerði þá vitneskju ekki að frétt í fjölmiðlum landsins en fór með þau tilvik sem ég hafði sönnur á til embættismanna sem höfðu til þess vald að láta leiðrétta athæfið. Reynsla mín af starfi og viðhorfum starfsfólks á stofnunum okkar nú til dags er einfaldlega góð. Ég hef nýlega verið til endurhæfingar inni á stórri stofnun í höfuðborginni og get vitnað að unnið var ötullega að því að heimilisfólkinu liði vel. Þannig þótti mér ekki kvíðaefni þó að ég ef til vill þyrfti einn góðan veðurdag að færa heimili mitt þangað! Hvað veit maður þegar árin eru orðin 92? Móðir mín fékk að lifa langa og góða ævi. Svo kom þar sögu að líkaminn fór að gefa sig og andlega þrekið fylgdi með. Hún flutti heimili sitt á hjúkrunarheimili í borginni. Flutningarnir voru hjalli sem við, börnin hennar, studdum hana yfir. Hún fékk líka stuðning frá starfsfólkinu sem ég er ævinlega þakklát fyrir. Þrátt fyrir það kom þar sögu að þessi kona, sem var þekkt fyrir jafnaðargeð og getu til að leysa málin og kenndi okkur, börnum sínum, að gera ekki úlfalda úr mýflugu, fór að fá kvíðaköst. Kvíðaefnin voru alfarið komin frá heila hennar og ollu þau henni mikilli vanlíðan. Öldrunarlæknir hennar sem bjó yfir mikilli fagþekkingu og góðvilja ræddi þessa vanlíðan við mig og sagði mér af lyfi sem hefði gefið góða raun í svipuðum tilvikum. Væri ég sammála því að skertur skammtur yrði gefinn henni til reynslu? Fljótlega kom í ljós að kvíðinn var á braut og þarf ekki að lýsa því hvað öll líðan hennar og okkar, barnanna hennar batnaði. Þarna var rétt staðið að málum. Samráð haft við aðstandanda einstaklingsins sem um ræddi og grannt fylgst með hvernig áhrif lyfjagjafar yrðu. Auðvitað eru vinnubrögð af þessu tagi tímafrek en ég tel að þau séu eina farsæla leiðin. Starfsfólk á stofnunum samfélagsins þarf að kunna sitt fag og hafa kærleikann að leiðarljósi. Þetta eru hin tvö mikilvægu K- kunnátta og kærleikur. Ef þessir tveir þættir eru ráðandi á stofnunum okkar verður ekki framar sótt efni þangað í annan Kveiksksþátt til sýningar í ríkissjónvarpinu. Mig langar að hvetja alla þá sem láta sig málefni þurfandi meðbræðra og systra varða að vinna að umbótum á réttum vettvangi. Góð umhugsun um þurfandi fólk er verkefni sem aldrei tekur enda. Höfundur er sérkennari og fyrrverandi skólastjóri Þroskaþjálfaskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bryndís Víglundsdóttir Eldri borgarar Lyf Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar