Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar 5. október 2026 11:01 Fælir 1.400 króna hækkun á aðgangi að baðlóni ferðamenn frá Íslandi? Um það snúast í raun skoðanaskipti okkar Þóris Garðarssonar hér á Vísi síðustu daga. Til upprifjunar: Virðisaukaskattur á baðlón á að hækka úr 11% í 24% um næstu áramót. Í grein 2. október studdi ég breytinguna en gagnrýndi hve skammur fyrirvarinn er. Þórir svaraði daginn eftir og sagði að fyrst þyrfti að meta heildaráhrifin. Við erum sammála um meira en ætla mætti. Þórir hefur rétt fyrir sér um að mæla eigi áhrifin en ekki giska á þau. Ég skrifaði að ferðamaður hætti líklega ekki við baðferð vegna 1.400 króna. Það var mat, ekki mæling. Hann hefur líka rétt fyrir sér um að tekjurnar verði ekki aðeins til í lóninu. Sá sem ekur til Egilsstaða til að fara í Vök gistir þar, borðar og kaupir eldsneyti. Það sem við vitum bendir þó til að áhrifin í heild séu lítil. Í nýrri skýrslu OECD kemur fram að áhrif ferðamannaskatta á eftirspurn séu yfirleitt lítil. Samkvæmt sömu skýrslu námu tekjur af erlendum ferðamönnum hér á landi 448 milljörðum króna árið 2024, og það ár komu um 2,3 milljónir ferðamanna. Það gerir tæplega 200.000 krónur á hvern ferðamann, og 1.400 krónur eru innan við eitt prósent af því. Þórir bendir á að náttúruböð séu vinsælasta afþreying erlendra ferðamanna. Það styður raunar að eftirspurnin sé traust, því fáir sleppa hápunkti ferðarinnar vegna lítillar verðhækkunar. En meðaltalið segir ekki alla söguna. Ferðamaður sem kom til Íslands meðal annars til að fara í Bláa lónið fer þangað líklega hvort sem miðinn kostar 12.000 eða 13.400 krónur. Fjölskylda á Akureyri með árskort í Skógarböðunum, eða ferðamaður á hringveginum sem veltir fyrir sér hvort hann eigi að stoppa við Vök, hugsar sig frekar um. Áhrifin verða því líklega mest á landsbyggðinni, og þar erum við Þórir sammála. Þórir bendir einnig á að hærra skatthlutfall tryggi ekki meiri heildartekjur og að samkeppnislönd noti lægri þrep á ferðaþjónustu, til dæmis Írland. Hvort tveggja er rétt, en Ísland gerir það líka. Gisting, veitingar, fólksflutningar og skipulagðar ferðir eru allar í 11% þrepinu og verða það áfram. Írar lækkuðu í sumar virðisaukaskatt á veitingaþjónustu í 9%. Rökin voru að verja störf í mannaflsfrekri grein sem hafði misst störf, ekki sérstaða ferðaþjónustunnar eða samkeppnishæfni áfangastaðarins. Gisting á Írlandi ber áfram 13,5%, hærra en hér. Spurningin er ekki hvort ferðaþjónustan eigi að njóta lægra þreps, heldur hvort baðlón eigi að gera það líka. Hér komum við að kjarna málsins. Til að vita svarið þarf gögn, og þau vantar. Ferðaþjónustan er stærsta útflutningsgrein landsins, en fjárveitingar Ferðamálastofu til rannsókna hafa staðið í stað að krónutölu frá 2020. Stofnunin bendir sjálf á að mun minna fé fari til gagnaöflunar í ferðaþjónustu en í sjávarútvegi, orkuframleiðslu og landbúnaði. Rannsóknamiðstöð ferðamála, sem háskólarnir reka, er í sömu stöðu. Í nýrri ársskýrslu hennar kemur fram að framlag ríkisins hefur verið óbreytt að krónutölu, 34,7 milljónir króna á ári, frá 2015. Það hefur því rýrnað um tæp 60% að raunvirði, á sama tíma og erlendum ferðamönnum hefur fjölgað um 77%. Forstöðumaður miðstöðvarinnar segir að viðvarandi óvissa um fjármögnun ógni tilverurétti hennar. Opinber gögn um hve margir heimsækja einstaka staði, hvaðan þeir koma og hvernig þeir bregðast við verðbreytingum eru af skornum skammti. Við stýrum stærstu atvinnugrein landsins að miklu leyti eftir tilfinningu. Þess vegna eru frestun og mat ekki andstæður. Ef breytingin tekur gildi 1. janúar 2028 í stað 2027 gefst ár til að safna grunngögnum um gestafjölda, hlutfall innlendra og erlendra gesta og ferðamynstur, og leggja fram áhrifamat byggt á þeim. Bendi matið til að skaðinn verði meiri en ávinningurinn má endurskoða áformin áður en þau taka gildi. Eftir gildistöku má svo mæla raunveruleg áhrif með samanburði við grunngögnin. Eitt enn. Lægra skattþrepið á baðlón kostar ríkissjóð um 4 milljarða króna á ári, og í fjárlagafrumvarpinu er það flokkað sem skattastyrkur. Gott mat ætti því að svara tveimur spurningum: hvað hækkunin myndi kosta ferðaþjónustuna og samfélagið, og hvort ívilnunin hafi skilað meiri ávinningi en þeim 4 milljörðum sem hún kostar. Þannig fengi ferðaþjónustan fyrirsjáanleika og stjórnvöld traustari grundvöll fyrir ákvörðun sinni. Og við hin fengjum svör í stað ágiskana. Höfundur er aðjúnkt í ferðamálafræði við Háskóla Íslands og leiðsögumaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Björnsson Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun