Gómuð við gróft svindl í Berlín Sindri Sverrisson skrifar 6. október 2026 07:31 Abeeeer reyndist hafa sest á reiðhjól í Berlínarmaraþoninu en lét það ekki stöðva sig í að þykjasta hafa klárað hlaupið og birta af sér myndir úr hlaupinu. Kínverski áhrifavaldurinn Abeeeer hefur beðist afsökunar eftir að hún varð uppvís að grófu svindli í Berlínarmaraþoninu fyrir rúmri viku. Hún birti af sér myndir eftir hlaupið og hreykti sér af frammistöðu sinni í hlaupinu en hefur nú eytt myndunum.
Myndir náðust af Abeeeer þar sem hún fékk sér far með reiðhjóli eftir að hafa hlaupið um 38 kílómetra af maraþoninu, samkvæmt frétt The Independent. Milltími hennar frá 35.-40. kílómetra í hlaupinu reyndist besti milltími hennar. Sérstök Instagram-síða tveggja ástralskra hlaupara sem vinna að því að góma áhrifavalda fyrir svindl í hlaupum, Official Marathon Time Integrity Unit, sýndi hver raunveruleg ástæða þessa góða millitíma í lokin var. Abeeeer er með um 530.00 fylgjendur á samfélagsmiðlum og hreykti sér af því eftir hlaupið að hafa náð sínum besta tíma sem þrátt fyrir svindlið var 4:53,46 klukkutímar. View this post on Instagram A post shared by am730 (@am730hk) Íþróttavöruframleiðandinn Brooks hafði verið í samstarfi við Abeeeer og útvegað henni hlaupaskó og annan búnað en hefur nú slitið því samstarfi, beðist afsökunar og lofað að skoða betur ferlið á bakvið það hvernig hlauparar eru valdir. Sjálf hefur Abeeeer einnig beðið fylgjendur sína afsökunar og viðurkennir að eiga sér ekki neinar málsbætur. „Ég mun ekki reyna að verja þessa hegðun,“ skrifaði Abeeeer sjálf og viðurkenndi að hafa gerst sek um mjög mikinn óheiðarleika. Hún kvaðst hafa fundið fyrir slappleika í hlaupinu en sagði það ekki réttlæta svindlið og bætti við að hún væri með mikið samviskubit yfir því sem hún gerði.
Hlaup Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone Sjá meira