Sport

Styrktaraðili HM snið­gengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alþjóðaíshokkísambandið hefur útilokað rússnesk landslið frá mótum sínum frá innrásinni í Úkraínu árið 2022 en Alþjóðaíþróttadómstóllinn hleypti þeim aftur inn.
Alþjóðaíshokkísambandið hefur útilokað rússnesk landslið frá mótum sínum frá innrásinni í Úkraínu árið 2022 en Alþjóðaíþróttadómstóllinn hleypti þeim aftur inn. Getty/Bruce Bennett

Stór styrktaraðili vill ekki lengur vera tengdur heimsmeistaramótinu í íshokkí eftir að ákveðið var að hleypa Rússlandi aftur inn á mótið.

Sænska fyrirtækið AJ Produkter hefur styrkt HM í íshokkí síðan 1989. Eftir tilkynninguna um að Rússland fái að taka þátt hefur þetta stóra sænska fyrirtæki ákveðið að fjarlægja merki sitt af mótinu.

„Það er miður að þurfa að taka þessa ákvörðun,“ sagði Enock Johansson, framkvæmdastjóri AJ, við TV4.

Á föstudag tilkynnti Alþjóðaíþróttadómstóllinn að Rússland fengi að taka þátt í komandi heimsmeistaramótum í íshokkí, þar á meðal karlamótinu í Þýskalandi næsta vor.

Fréttirnar hafa vakið hörð viðbrögð, sérstaklega á Norðurlöndum og í Þýskalandi.

AJ hefur nú ákveðið að fjarlægja merki sitt af öllum sýnilegum stöðum á komandi heimsmeistaramóti karla, að því er TV4 greinir frá.

„Þetta er mjög leiðinleg ákvörðun, en við erum einhuga um að hún sé sú rétta,“ sagði Johansson.

Ákvörðunin felur meðal annars í sér að merki AJ verður fjarlægt af búningum dómara og starfsmanna, sem og af batta umhverfis ísinn meðan á mótinu stendur.

„Það sem við getum gert til að taka afstöðu er einfaldlega að fjarlægja vörumerkið okkar. Við teljum mikilvægt að gera það,“ sagði Johansson.

Alþjóðaíshokkísambandið hefur útilokað rússnesk landslið frá mótum sínum frá innrásinni í Úkraínu árið 2022 og lýsti á föstudag yfir vonbrigðum með úrskurð CAS.

„IIHF er ósammála úrskurðinum og heldur fast við að upphafleg ákvörðun okkar hafi verið nauðsynleg til að tryggja öryggi allra þátttakenda á mótunum,“ sagði sambandið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×