Sport

„Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Pétur Már Sigurðsson er þjálfari Grindavíkur kvenna.
Pétur Már Sigurðsson er þjálfari Grindavíkur kvenna. Vísir / Hulda Margrét

Grindavík hélt sigurgöngu sinni áfram í kvöld þegar þær heimsóttu Íslandsmeistara Njarðvíkur í IceMar höllina í Bónus deild kvenna í kvöld. Eftir mikinn baráttu leik hafði Grindavík að lokum betur með fjögurra stiga mun 93-97. Pétur Már Sigurðsson þjálfari Grindavíkur að stoltur í leikslok.

„Mjög sáttur, við unnum“ sagði Pétur Már Sigurðsson þjálfari Grindavíkur að vonum sáttur eftir sigurinn í kvöld.

„Mér fannst varnarleikurinn hjá okkur í seinni hálfleik miklu betri. Hann var slakur í fyrri hálfleik. Brittany Dinkins var að fara illa með okkur“

„Hún var náttúrulega bara á eldi hérna í dag. Hún var að hitta allskonar skotum og við þurftum bara að fara í einhverja indjánavörn til þess að dekka hana og það virkaði “

Grindavík var undir með sex stigum í hálfleik en komu út með gríðarlegum krafti út í seinni hálfleikinn.

„Við einbeittum okkur að því að dekka Brittany Dinkins aðeins betur. Hún fékk á hálfum velli að fara bara upp í sniðskot þrisvar, fjórum eða fimm sinnum sem að er bara algjörlega ólýðandi“

„Þá kemst hún bara í stuð og hún var bara kominn í stuð og það er erfitt að eiga við hana þegar hún er svona. Við vorum að dekka hana með einum manni og fjórar að hjálpa þannig að það virkaði þá allavega því þetta er náttúrulega bara geggjaður leikmaður þannig það þurfti að gera eitthvað“

Gríðarlega sterkur sigur fyrir Grindavík sem mætti á heimavöll Íslandsmeistarana og sótti tvö stig.

„Ég er bara ánægður og stoltur. Þetta lið sem að ég er með er bara frábært, geggjaðir karakterar, vinnusamar, andlegi þátturinn er sterkur og mig bara hlakkar til restinnar af tímabilinu með þessum frábæra hóp“

Grindavík eru nú ósigraðar og einar á toppi deildarinnar en það má þó ekki fara fram úr sér.

„Það er bara klisjan alltaf, einn leikur í einu. Það þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest þegar þú ert í grunnbúðum eitt“ sagði Pétur Már Sigurðsson léttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×