Skoðun

Endur­hæfum Reykja­lund - Þakkir frá stjórn Holl­vina Reykja­lundar

Júlíus Þór Jónsson, Bárður H. Tryggvason, Erna Arnardóttir, Kolbrún Þorsteinsdóttir og Örn Kjærnested skrifa

Það er stórkostleg tilfinning þegar samtakamáttur og samhugur verður til þess að lyfta grettistaki. Íslendingar, bæði einstaklingar og fyrirtæki tóku Hollvinum Reykjalundar opnum örmum á föstudagskvöldið þegar landssöfnunin Endurhæfum Reykjalund fór af stað í beinni útsendingu á RÚV og SÝN. U.þ.b. 122.000.000 söfnuðust og er það framúr þeim væntingum sem voru til átaksins. Afrakstri söfnunarinnar Endurhæfum Reykjalund verður varið í að endurbæta óheilnæmt húsnæði endurhæfingadeildar á Reykjalundi.

Þar sannaðist enn og aftur að þjóðin vill leggja lið samfélagsverkefnum, sem bæta líf og heilsu þjóðarinnar. Um 1.200 manns fara á hverju ári í gegnum fimm vikna meðferð á Reykjalundi og má segja að í flestum fjölskyldum sé að finna einhvern sem hefur notið endurhæfingar þar. Í sjónvarpsþættinum voru sagðar sögur af sigrum sem unnist hafa vegna enduræfingar á Reykjalundi, sigrar sem skipta þjóðina máli. Hollvinir Reykjalundur þakka einstaklingum, fyrirtækjum stórum sem smáum, félagasamtökum, klúbbum, sveitarfélögum, kvenfélögum og skipsáhöfnum og öllum þeim sem lögðu söfnuninni lið með peningaframlagi eða vinnu. Gestgjafar í beinni útsendingu lögðu hjartað í verkefnið, sem og allt annað starfsfólk bæði á RÚV og SÝN sem komu að útsendingunni.

Við þökkum einnig af alhug öllum þeim sem greiddu leið okkar og lögðu hönd á plóg við skipulag og framkvæmd söfnunarinnar. Tónlistarmennirnir sem fram komu í söfnuninni gáfu allir vinnu sína og við þökkum fyrir það. Magnað hvað tónlistarmenn landsins taka alltaf vel í að gefa vinnu sína fyrir góðan málstað.

Án ykkar allra hefði árangurinn ekki orðið svo góður sem raun ber vitni.

Takk fyrir stuðninginn kæra þjóð mín!

Stjórn Hollvina Reykjalundar, Júlíus Þór Jónsson formaður, Bárður H. Tryggvason, Erna Arnardóttir, Kolbrún Þorsteinsdóttir og Örn Kjærnested.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×