„Við erum að gefa boltann upp“ Smári Jökull Jónsson skrifar 7. október 2026 18:02 Magnús á fundinum í dag. Vísir/Sigurjón Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið hafi saknað þess að taka heildarumræðu um skólamál þar sem farið er dýpra í hlutina. Hann segir sambandið vera að gefa boltann upp og kalli nú eftir samfélagslegu samtali um menntamál.
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur sambandsins en í tilkynningu frá sambandinu sagði að skólakerfi yrði ekki byggt með skyndilausnum frá einu kjörtímabili til annars. „Við höfum á undanförnum árum verið í alls konar umræðu um skólastarf. Við höfum sem samband mjög sterka faglega vitund og þingið okkar í vor var lýðræðisvettvangur og innrammaði þann metnað og áhuga sem við höfum fyrir starfinu,“ sagði Magnús í viðtali að loknum fundinum í dag. „Þannig að við ákváðum að vera ekki þau sem bregðast ekki við heldur vera á þeim stað að benda á það sem við teljum að sé gott að gera. Þá er þetta samfélagslega samtal sem hefur verið leiðarljós í skólastarfi og stefnum kennarasamtaka víða um heiminn, að við köllum fólk að borðinu. Við vitum um hluti sem við viljum ræða en reiknum alveg með því að fleira verði rætt.“ „Það verður eitt fyrsta símtalið“ Hann segir að sambandið hafi saknað heildarumræðu um skólamál og að fara dýpra í umræðuna. Hluti af því að fá samfélagið með í umræðuna er opnun heimasíðu, Mótum framtíðina saman, sem kynnt var á fundinum í dag. „Við munum örugglega hafa samband við það fólk sem hefur verið valið til ábyrgðar í samfélaginu. Við erum að gefa boltann upp og erum tilbúin að fara víðs vegar og vera á sem flestum stöðum. Þar erum við sem erum í framvarðasveit KÍ og þeir sem eru að vinna málið með okkur tilbúnir að koma og hitta fólk.“ Magnús segir að ekki hafi verið haft samband við menntamálayfirvöld í tengslum við kynninguna í dag. „Nei, ekki beint í tengslum við þessa vinnu. Þetta hefur rímað við ákveðna þætti í því sem menntamálayfirvöld hafa verið að gera. Þau vita af fundinum og þau vita af því að við viljum vera í samtali. Það verður eitt fyrsta samtalið sem við fáum um málið, við menntamálaráðuneytið.“ Umtalsverð fjölgun nemenda sem þurfa stuðning Á fundinum í dag kynnti Magnús meðal annars tölfræði tengda skólakerfinu en samtals stunda um hundrað þúsund nemendur nám í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum landsins. Kom Magnús víða við og fjallaði um nýliðun kennara, rekstrargrundvöll skóla á öllum skólastigum, kostnað við skólakerfið sem og biðlista í tónlistarskólum. Meðal þess sem Magnús talaði sérstaklega um voru fjölbreyttir nemendahópar og kom meðal annars fram að hlutfall grunnskólabarna með erlendan bakgrunn hefði hækkað úr 14 prósentum árið 2006 í 30 prósent nú. Hlutfall grunnskólabarna með erlendan bakgrunn í árgangi hefur hækkað umtalsvert á síðustu árum.KÍ Einnig voru sýndar tölur sem sýndu fjölda grunnskólanema sem njóta sérkennslu eða stuðnings. Þeim nemendum hefur fjölgað umtalsvert og hlutfall þeirra í árgangi aukist. 38,8 prósent grunnskólabarna í hverjum árgangi fá stuðning í námi og er hlutfall drengja hærra en hlutfall stúlkna. Yfirlit yfir nemendur sem njóta stuðnings í grunnskólum.KÍ Í lok fundarins sagði Magnús að félagið kallaði eftir víðtæku samtali í von um að afraksturinn verði öflug framtíðarsýn Ísland sem leiði til enn meiri árangurs í skólakerfinu. Í því fælust samtöl við almenning, stjórnvöld, sveitarstjórnar og fagfólk. „Við skorum á fólk að kíkja á bæklinginn, skoða vefsíðuna og vera með okkur í því að við getum saman tekið stór skref í því að gera gott skólastarf enn betra,“ sagði Magnús við lok kynningarinnar í dag.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Framhaldsskólar Leikskólar Börn og uppeldi Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Sjá meira