Samþykktu að slíta kjarasamningum Agnar Már Másson skrifar 7. október 2026 22:03 „Það er erfitt að vera í samningaviðræðum og vera einn um það að leita lausna,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Vísir/Anton Brink Stjórn VR hefur ákveðið að slíta kjarasamningum á morgun. Formaðurinn segir að samningar myndu þá renna út í lok mánaðar en þetta geti haft í för með sér að opinberu stéttarfélögin megi einnig segja upp sínum samningum. „
Ég var með fund í stjórn VR í kvöld þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi. VR hefur ásamt LÍV og fagfélögunum staðið í kjaradeilu síðustu daga vegna forsendubrests kjarasamninga en frestur til að slíta samningunum rennur út klukkan 16 á morgun, fimmtudag. Halla nefnir að eftir því sem næst verði komist séu Samtök atvinnulífsins á leiðinni á árshátíð á morgun, eins og greint hefur verið frá, en sömuleiðis kveðst hún ekki skynja vilja af hálfu samtakanna til að koma til móts við stéttarfélögin. Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, segir að bæði hann og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri, verði á staðnum á morgun og til viðræðna, eins og fram kom í frétt um árshátíðarferð SA í dag. „Við erum búin að teygja okkur gríðarlega langt,“ bætir hún við og nefnir að VR hafi boðið fram „hlaðborð af lausnum“ til þess að komast til móts við kröfur SA en að samtökin hafi ekki sýnt sömu viðleitni á móti. Jafnframt segir hún að ríkisstjórnin hafi einnig teygt sig langt og jafnvel einstaka aðildarfyrirtæki innan SA. „Það er erfitt að vera í samningaviðræðum og vera einn um það að leita lausna.“ Hún gerir ráð fyrir því að kjarasamningum verði sagt upp á morgun en ef af því verður gætu uppsagnarheimildir sömuleiðis virkjast hjá opinberu stéttarfélögunum. Samningarnir muni renna gildi 31. október og þá taki við ný lota kjaraviðræðna þar sem Halla segist munu fara fram á mun stærri kröfur. „Þá er allt undir,“ bætir hún við. Halla segir að VR hafi síðast fundað með SA fyrir hádegi og en að fundir með samtökunum hafi upp til hópa verið stuttir og að litlu leyti snúist um að finna lausn á deilunni. Þó að SA hafi ekki verið formlega upplýst um ákvörðun stjórnar VR að svo stöddu segir Halla að samtökunum ætti að vera ljóst að þetta væri staðan. „Við erum opin fyrir lausnamiðuðu samtali og það stendur ekki í okkur að finna lausnir.“
Vinnumarkaður Stéttarfélög Verðlag Efnahagsmál Kjaraviðræður 2023-25 Atvinnurekendur Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira